Samfélagsmiðlar

Íslandsflug þýsku félaganna gekk vel

Forsvarsmenn German Wings og Lufthansa eru mjög sáttir við sölu á Íslandsferðum nýliðið sumar. Íslendingar eru þó lítill hluti farþeganna.

„Við erum virkilega ánægð með að hafa náð nærri 90 prósent sætanýtingu í sumar“, segir Christian Schindler, framkvæmdastjóri hjá Lufthansa í samtali við Túrista um Íslandsflug félagsins. Hann segir meirihluta farþeganna hefja ferðalagið í Þýskalandi og Lufthansa leggi þannig ferðaþjónustunni á Íslandi lið.

Fleiri ferðir

Næsta sumar reiknar Schindler með að ferðum milli Berlínar og Reykjavíkur verði fjölgað. En Lufthansa flaug hingað frá þremur þýskum borgum í sumar sem leið. Hann á þó ekki von á því að félagið bæti Íslandi við sem áfangastað yfir veturinn því það séu aðallega ferðamenn sem ferðast til landsins en ekki fólk í viðskiptaerindum.

Unnu kapphlaupið um Köln

Talsmaður lággjaldaflugfélagsins German Wings, sem er dótturfyrirtæki Lufthansa, tekur í sama streng og segir að flug félagsins milli Reykjavíkur og Kölnar í sumar hafi gengið mjög vel. Hann segir þó of snemmt að segja til um hversu margar ferðir German Wings muni fljúgja til Íslands á næsta ári.

Iceland Express og WOW air lentu bæði í basli með flug sitt til Kölnar í sumar og þurftu sameina ferðir þangað með flugi til annarra borga líkt og kom fram hér á síðunni. Það þarf því ekki að koma á óvart að Köln er ekki á sumardagskrá félaganna á næsta ári. German Wings situr því eitt að flugleiðinni líkt og það gerði áður.

Airberlin heldur áfram

Síðustu sumur hefur Airberlin verið það félag sem flogið hefur til Íslands frá flestum borgum. Í fyrra voru þær sex talsins og segir talskona félagsins að nú styttist í að sala á sumarferðum félagsins til Reykjavíkur hefjist. Hún vill þó ekki gefa upp hversu margir áfangastaðirnir verða næsta sumar.

NÝJAR GREINAR: 5 ástæður til að heimsækja Berlín í vetur
TENGDAR GREINAR: Íslensku félögin bíða lægri hlutVegvísir Berlín

Mynd: DZT

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …