Samfélagsmiðlar

Til þessara borga var ferðinni heitið

Það var boðið upp á áætlunarflug til 22 borga frá Keflavík í nóvember en það er mikill munur á fjölda ferða til hverrar og einnar.

Í síðasta mánuði voru farnar tæplega 700 áætlunarferðir frá Keflavíkurflugvelli. Fimmta hver vél tók stefnuna á flugvellina í kringum höfuðborg Bretlands samkvæmt talningu Túrista. Easy Jet, Icelandair og Wow Air fljúga öll til Lundúna allt árið um kring og umferðin þangað hefur tvöfaldast á tveimur árum. Flugsamöngur við aðrar borgir eru mun minni eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Til Kaupmannahafnar var flogið nærri nítíu sinnum í nóvember og er borgin í öðru sæti þegar litið er til fjölda ferða.

Líkt og til London eru það þrjú flugfélög sem fljúga allt árið til Oslóar og voru ferðirnar þangað nærri sjötíu talsins.

New York með yfirhöndina

Í haust hóf Icelandair að fljúga til Newark flugvallar í nágrenni við New York borg. Þar með hefur ferðunum þangað fjölgað því félagið heldur áfram að fljúga til JFK flugvallar í útjaðri borgarinnar. New York var því í fjórða sæti á listanum yfir þá staði sem flogið var oftast til frá Keflavík í nóvember. París er í fimmta sæti en bæði Icelandair og Wow Air fljúga þangað í vetur.

Vægi áfangastaðanna í brottförum talið í nóvember:

  1. London: 21%
  2. Kaupmannahöfn: 13%
  3. Osló 10%
  4. New York: 7%
  5. París: 6%
  6. Boston: 5,5%
  7. Stokkhólmur: 5%
  8. Amsterdam: 4,5%
  9. Seattle: 4%
  10. Frankfurt: 3,5%

TENGDAR GREINAR: Það reyndi á þolinmæði farþega
ÓDÝR HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu út um allan heim

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …