Samfélagsmiðlar

Margfalt fleiri ferðir til Bretlands

birmingham gata

Fjögur flugfélög skipta á milli sín nærri sextíu ferðum í viku frá Keflavík til Bretlands næstu mánuði. Í vetur hafa fjögur flugfélög skipt á milli sín nærri sextíu ferðum í viku frá Keflavík til Bretlands. Svo mikil gróska var ekki í samgöngum milli landanna fyrir nokkrum árum síðan.
Um árabil var svo lítil eftirspurn eftir ferðum milli Íslands og Bretlands að flug til Manchester og Glasgow voru sameinuð. Þeir sem ætluðu til skosku borgarinnar urðu þá að bíða í vélinni í Manchester á meðan farþegar á leið þangað fóru frá borði og aðrir komu inn. Icelandair hætti þessu hringflugi milli Íslands, Englands og Skotlands haustið 2011 og síðan þá hefur framboð á flugi héðan til Bretlandseyja margfaldast. Í dag er til að mynda flogið beint héðan til níu breskra flugvalla en þeir voru fjórir fyrir fjórum árum síðan.

Loftbrú til London

Flug til höfuðborgar Bretlands var lengi vel í föstum skorðum. Vélar Icelandair flugu þangað tvisvar á dag og Iceland Express bauð upp á nokkrar ferðir í viku. Fyrstu mánuði ársins 2012 voru til að mynda farnar nítján ferðir í viku héðan til flugvallanna í nágrenni við London. Núna eru þær meira en tvöfalt fleiri og suma daga geta farþegar valið úr sex áætlunarferðum milli Keflavíkurflugvallar og Heathrow, Gatwick og Luton.

EasyJet gefur í

Vorið 2012 hóf breska lágfargjaldaflugfélagið easyJet að fljúga til Íslands. Til að byrja með voru ferðirnar aðeins þrjár í viku en þeim hefur fjölgað hratt síðan þá. Í desember síðastliðnum tóku vélar breska félagsins til að mynda hundrað og einu sinni á loft frá Keflavík samkvæmt talningu Túrista. Skiptust ferðirnar á milli sex breska flughafna.

Bretar fjölmennari en Íslendingar

Eins og gefur að skilja er ferðagleði Íslendinga ekki helsta ástæðan fyrir þessum tíðum samgöngum milli Íslands og Bretlands. Breskum ferðamönnum hefur nefnilega fjölgað hratt hér á landi síðustu ár og sérstaklega á veturna. Í janúar á síðasta ári komu til að mynda tvöfalt fleiri Bretar hingað en í maí. Þau tiðindi urðu svo í febrúar að þá innrituðu fleiri Bretar sig í flug á Keflavíkurflugvelli en Íslendingar. Íslenskir farþegar höfðu þangað til verið langstærsti farþegahópurinn á Keflavíkurflugvelli samkvæmt mánaðarlegum talningum Ferðamálastofu. Eins ber að taka með í reikninginn að stór hluti farþega Icelandair í Bretlandi er á leið yfir hafið.

Það verður áhugavert að sjá hvert framhaldið verður í flugi milli Íslands og Bretlands og hvort ferðunum og áfangastöðunum fjölgi eða fækki. Það er ekki heldur útilokað að fleiri flugfélög blandi sér í slaginn. Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian fékk til að mynda leyfi til að fljúga hingað frá Gatwick í vetur en nýtti það ekki. Flugfloti Ryanir mun stækka í ár og í kjölfarið gætu forsvarsmenn félagsins á ný kannað flug til Íslands. British Airways flaug eitt sinn hingað en hætti vegna skorts á flugvélum. Kannski tekur félagið upp þráðinn á ný.Hvað sem þessum vangaveltum líður er ljóst að íslenskir túristar hafa úr mörgum kostum að velja þegar þeir ætla að sækja Breta heim eins og sjá má hér fyrir neðan.

Áætlunarflug til Bretlands næstu mánuði:

Belfast: easyJet tvisvar í viku. Birmingham: Flybe þrisvar í viku og Icelandair tvisvar frá 5.febrúar.
Bristol: easyJet þrisvar í viku. Edinborg: easyJet þrisvar í viku
Glasgow: Icelandair fimm ferðir í viku. London: easyJet 5 til 7 ferðir í viku til Luton og þrisvar til Gatwick. Icelandair tvisvar á dag til Heathrow og allt að sex sinnum í viku til Gatwick. WOW air allt að 10 ferðir í viku til Gatwick.
Manchester: easyJet og Icelandair þrisvar í viku.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …