Samfélagsmiðlar

British Airways snýr aftur til Íslands

british airways

Eitt stærsta flugfélag heims ætlar á ný að bjóða upp á áætlunarflug til Keflavíkurflugvallar og nú frá Heathrow í London. Eitt stærsta flugfélag heims ætlar á ný að bjóða upp á áætlunarflug til Keflavíkurflugvallar og nú frá Heathrow í London.
Breska flugfélagið British Airways mun bjóða upp á reglulegar ferðir til Íslands frá og með 25. október. Flogið verður alla miðvikudaga, föstudaga og sunnudaga og fara vélarnar í loftið frá Keflavík klukkan hálf fjögur seinni partinn og lenda við Heathrow flugvöll rétt um kvöldmatarleytið. 
„Við erum glöð og stolt yfir því að geta boðið upp á flug frá Reykjavík til Heathrow flugvallar. Ég hlakka til að geta sýnt íslenskum farþegum okkar Terminal 5 bygginguna í Heathrow og bjóða þeim upp á tengiflug til Evrópu og út um allan heim,“ segir Peter Rasmussen, viðskiptastjóri British Airways í Norður-Evrópu, í samtali við Túrista.

Bjóða ódýrari miða

Lægstu fargjöld British Airways héðan til Heathrow og tilbaka kosta í dag um 17.200 krónur (86 pund) að því segir í tilkynningu frá félaginu. Samkvæmt athugun Túrista er þó algengara að miðinn báðar leiðir sé á um 31 þúsund krónur en hjá Icelandair kosta ódýrustu farmiðarnir, báðar leiðir til Heathrow, næsta vetur um 40 þúsund krónur. Við ódýrustu fargjöldin hjá British Airways bætist farangursgjald. 

Með reynslu af Íslandi

Þetta verður ekki í fyrsta skipti sem British Airways flýgur til Íslands því félagið var til að mynda nokkuð umsvifamikið í Íslandsflugi á áttunda áratugnum og bauð einnig upp á reglulegar ferðir héðan til Gatwick flugvallar á árunum 2006 til 2008. Eins og áður segir mun félagið núna fljúga hingað frá Heathrow og geta farþegar í Íslandsfluginu náð tengiflugi þaðan beint til fjölmargra borga í Asíu, Afríku og S-Ameríku, til dæmis Hong Kong, Singapúr, Höfðaborgar, Buenos Aires, Sao Paulo, Mumbaí og Moskvu. Hingað til hefur Icelandair verið eitt um að fljúga héðan til Heathrow en lendingarleyfi á flugvellinum eru ófáanleg í dag og ganga á kaupum og sölu fyrir milljarða króna. Það má því segja að forsvarsmenn British Airways hafi mikla trú á fluginu hingað til lands með því bæta Íslandi við leiðakerfi félagsins frá þessum stærsta flugvelli Evrópu.

Að minnsta kosti 6 ferðir á dag til London

Með tilkomu British Airways verða í boði allt að fjörtíu og fjórar brottfarir í viku frá Keflavíkurflugvelli til flugvallanna við höfuðborg Bretlands. Hafa ferðirnir meira en tvöfaldast síðustu ár því veturinn 2012 voru í boði 19 ferðir í viku líkt og Túrista greindi frá. Auk British Airways býður Icelandair upp á flug til Heathrow, til Gatwick fljúga bæði íslensku félögin auk easyJet en breska félagið er einnig með reglulegar ferðir frá Luton flugvelli í námunda við London.
British Airways er eitt stærsta flugfélag Evrópu og umsvifamesta alþjóðlega flugfélagið í Bretlandi. British Airways er hluti af IAG samsteypunni sem rekur einnig spænsku flugfélögin Iberia og Vueling en það síðarnefnda flýgur hingað frá Barcelona og Róm fyrir sumartímann.
 

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …