Samfélagsmiðlar

Svona skiptast farþegarnir í Kaupmannahöfn á milli Icelandair og WOW

cph terminal

Farþegum Icelandair til og frá dönsku höfuðborginni fjölgaði í fyrra en færri sátu um borð í vélum WOW air. Samkeppni á flugleiðinni mun aukast verulega í ár. Farþegum Icelandair til og frá dönsku höfuðborginni fjölgaði í fyrra en færri sátu um borð í vélum WOW air. Samkeppni á flugleiðinni mun aukast verulega í ár.
Daglega fara þotur Icelandair tvær til fimm ferðir til höfuðborgar Danmerkur og í fyrra nýttu rúmlega 337 þúsund farþegar sé þetta áætlunarflug. Það er aukning um 33 þúsund farþega eða um 11 prósent frá árinu á undan samkvæmt tölum frá Kaupmannahafnarflugvelli. Icelandair var fjórtánda umsvifamesta flugfélagið í þessari stærstu flughöfn Norðurlanda árið 2015.

Hlutdeild Icelandair eykst með fleiri ferðum

Í heildina fóru 437.507 farþegar milli Kaupmannahafnar og Keflavíkurflugvallar á síðasta ári og fjölgaði þeim um sex af hundraði samkvæmt upplýsingum Túrista frá Kaupmannahafnarflugvelli. Danska höfuðborgin er sá erlendi áfangastaður sem næst oftast er flogið til frá Íslandi en auk Icelandair býður WOW air upp á áætlunarferðir þangað. Forsvarsmenn danska flugvallarins gefa hins vegar aðeins upp farþegafjölda 20 umsvifamestu flugfélaganna þar á bæ og WOW er ekki eitt af þeim. En miðað við farþegafjöldann á flugleiðinni í fyrra og hittifyrra þá má álykta að farþegum í Kaupmannahafnarflugi WOW fækkað úr 108 þúsund niður í 100 þúsund á síðasta ári því íslensku félögin tvö eru ein um þessa flugleið. Hlutdeild Icelandair í Kaupmannahafnarfluginu hefur þar af leiðandi farið upp í 77 prósent í fyrra sem er meira vægi en árin á undan eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan.

Iceland Express náði stórum hluta til sín

Samkvæmt talningum Túrista þá fækkaði WOW air ferðum sínum til Kastrup lítilega á síðasta ári á meðan Icelandair bætti ögn við. Í heildina voru ferðir Icelandair til Kaupmannahafnar nærri þrisvar sinnum fleiri en ferðir WOW air í fyrra og sá munur endurspeglast í farþegafjölda félaganna á þessari flugleið. Þess má geta að fyrsta heila árið í rekstri Iceland Express náði félagið 40 til 45 prósent hlutdeild í Kaupmannahafnarfluginu samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins sem kom út 2013. 

Miklar breytingar í farvatninu

Í lok mars næstkomandi hefur SAS, stærsta flugfélag Norðurlanda, áætlunarflug hingað frá Kaupmannahöfn og mun fljúga leiðina daglega allt árið um kring. SAS bauð síðast upp á beint flug á þessari leið fyrir um tveimur áratugum síðan en með endurkomu félagsins eykst samkeppni í flugi milli Íslands og Danmerkur verulega. Það er því ljóst að hlutdeild Icelandair og WOW air í Kaupmannahafnarfluginu verður gjörbreytt þegar árið 2016 verður gert upp. 
Hafa ber í huga að hluti farþega íslensku flugfélaganna, á leið til og frá Kaupmannahöfn, millilendir aðeins hér á landi á leið yfir hafið. 

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …