Samfélagsmiðlar

Vorflug til Spánar á 28 til 40 þúsund krónur

barcelona Tyler Hendy

Það er hægt að finna ódýrar flugmiða til Barcelona, Alicante, Las Palmas og Tenerife á mýmörgum dagsetningum apríl og maí. Það er hægt að finna ódýrar flugmiða til Barcelona, Alicante, Las Palmas og Tenerife á mýmörgum dagsetningum apríl og maí. 
Í vetur hefur flug til Spánar takmarkast við Kanarí og Tenerife en nú bætast við áætlunarferðir til Alicante og Barcelona. Framboðið hefur aldrei verið eins mikið og til að mynda hægt að velja úr áætlunarflugi með þremur flugfélögum til vinsælustu áfangastaðanna. Þessi aukna samkeppni hefur áhrif á verðið, alla vega núna í vor en farmiðar sumarsins kosta í flestum tilfellum mun meira. Þeir sem komast út í nokkra daga nú í apríl og maí geta því gert góð kaup eins og sjá má á upptalningunni hér fyrir neðan. Ókosturinn er hins vegar sá að í langflestum tilfellum þarf að borga aukalega fyrir innritaðan farangur. 

Barcelona

23. til 25.apríl. 32.055 kr. með Vueling
23. til 30.apríl. 30.795 kr. með Vueling
3. til 5.maí. 30.300 kr. með Vueling
3. til 9.maí. 32.055 kr. með Vueling
6. til 12.maí. 32.055 kr. með Vueling
18. til 23.maí. 30.997 kr. með WOW
Hægt er að bóka sérkjör á hótelum í Barcelona í dag og morgun á vef Hotels.com.
Hotel Primera Primero (11. besta hótelið skv. Tripadvisor) býður hér 20% afslátt í vor.

Alicante

19. til 26.apríl. 28.997 kr. með Primera Air
23. til 30.apríl. 33.997 kr. með WOW
23.apríl til 5.maí. 28.990 kr. með Primera Air
29.apríl til 10.maí. 28.990 kr. með Primera Air
10. til 17.maí. 30.997 kr. með WOW
12. til 21.maí. 30.997 kr. með WOW

Tenerife

23. til 29.apríl. 27.990 kr. með Primera Air
26.apríl til 6.maí. 33.990 kr. með Primera Air
29.apríl til 6.maí. 33.990 kr. með Primera Air
Á útsölu Hotels.com eru nokkur hótel á Tenerife

Las Palmas

16. til 23. apríl. 39.997 kr. með WOW
30.apríl til 7.maí. 39.997 kr. með WOW

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …