Samfélagsmiðlar

Óvissa með Íslandsflug næststærsta flugfélags Þýskalands

airberlin 860

Airberlin er í kröggum en fyrirtækið hefur stundað Íslandsflug um langt skeið og var umsvifamesta erlenda flugfélagið hér á landi í ágúst. Airberlin er í kröggum en fyrirtækið hefur stundað Íslandsflug um langt skeið og var umsvifamesta erlenda flugfélagið hér á landi í ágúst.
Sumarið 2006 fór Airberlin jómfrúarferð sína til Íslands og allar götur síðan hefur þetta annað stærsta flugfélag Þýskalands boðið upp á flug hingað frá nokkrum þýskum borgum frá vori og fram á haust. Síðastliðinn vetur bauð félagið svo í fyrsta skipti upp á vetrarferðir hingað frá Berlín og nýverið var tilkynnt um heilsársflug til Dusseldorf. Umsvif Airberlin hafa því aukist umtalsvert hér á landi síðustu misseri og síðasta mánuði lentu þotur félagsins að jafnaði þrisvar sinnum á dag á Keflavíkurflugvelli samkvæmt daglegum talningum Túrista. Ekkert annað erlent flugfélag stóð fyrir jafn tíðum ferðum hingað í ágúst. Auk þess býður dótturfélagið, FlyNiki, upp á þrjár brottfarir í viku til Íslands frá Vínarborg og má áætla að á bilinu 35 til 40 þúsund erlendir ferðamenn hafi nýtt sér áætlunarferðir félaganna tvegga til Íslands í sumar. 

Losa sig við 78 þotur

Rekstur Airberlin hefur hins vegar lengi gengið illa og í fyrra keyptu eigendur flugfélagsins Etihad, frá Sameinuðu arabísku fyrstadæmunum, stóran hlut í fyrirtækinu. Það virðist hins vegar ekki hafa dugað því í fyrradag tilkynntu stjórnendur Airberlin að flugfloti félagsins yrði helmingaður og stöðugildum fækkað um tólf hundruð. Í framhaldinu er ætlunin að Airberlin einbeiti sér að flugi frá aðeins Berlín og Dusseldorf og sinni eingöngu ábatasömum flugleiðum og langferðum eins og það er orðað í tilkynningu. Talsmaður Airberlin gat hins vegar ekki nú í morgun gefið Túrista svör um hvort flugið til Íslands frá Munchen og Hamborg myndi leggjast af í framhaldinu eða hvort breytingar yrðu á áætluninni frá Berlín og Dusseldorf. En líkt og áður segir þá er vetrarflug frá síðarnefndu borgunum til Íslands á dagskrá Airberlin í allan vetur. 

Tækifæri fyrir Icelandair og WOW

Þessi mikli niðurskurður hjá Airberlin er í erlendu ferðapressunni talinn verða til þess að lággjaldaflugfélög eins og Ryanair, easyJet og Eurowings muni auka umsvif sín á þýska markaðnum. Það síðarnefnda er í eigu Lufthansa, stærsta flugfélags Þýskalands, og mun fyrirtækið taka yfir tugi flugvéla frá Airberlin í kjölfar niðurskurðarins. Eurowings flýgur hingað til lands frá 5 þýskum borgum en aðeins yfir sumarmánuðina en á því gæti orðið breyting ef samdrátturinn hjá Airberlin nær einnig til Íslandsferðanna. Bæði Icelandair og WOW air eru einnig stórtæki í flugi milli Íslands og Þýskalands og forsvarsmenn félaganna gætu séð tækifæri í tíðari ferðum fari Airberlin út af íslenska markaðnum næsta sumar þegar hið gjörbreytta Airberlin fer í loftið.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …