Samfélagsmiðlar

Næststærsta hótelkeðja landsins til sölu

Stjórn Icelandair Group hafa ákveðið að hefja söluferli á hótelum fyrirtækisins

Frá hinu nýja Konsulat Reykjavík hóteli sem Icelandair Group reka.

„Við kynntum nýtt skipulag í upphafi ársins þar sem við skiptum starfsemi félagsins í tvennt; annars vegar alþjóðaflugstarfsemi og hins vegar fjárfestingar í flugstarfsemi og ferðaþjónustu. Við stígum nú næsta skref og höfum ákveðið að hefja ferli sem miðar að því að selja meirihluta í hótelfélagi okkar; Icelandair Hotels. Við horfum með sama hætti á þær fasteignir sem tilheyra þessum rekstri. Icelandair Hotels er í fremstu röð á Íslandi, hefur sterka markaðsstöðu, er vel rekið og með frábært starfsfólk. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á félaginu að undanförnu, bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Markmið okkar með þessari breytingu er að skerpa enn frekar á kjarnastarfsemi okkar, alþjóðaflugstarfseminni. Þar ætlum við að fjárfesta í frekari vexti félagsins, í stafrænum lausnum, aukinni sjálfvirkni og nýjum flugvélum,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu, þar sem kynnt er sala á hótelum fyrirtækisins.

Icelandair hótel rekur 13 hótel: Reykjavík Natura, Reykjavík Marina, Hilton Reykjavík Nordica, Canopy Reykjavik | City Centre, Reykjavík Konsúlat Hótel og Hótel Alda. Á landsbyggðinni eru Icelandair hótel á Akureyri, við Mývatn og á Héraði. Einnig eru sérleyfishótel á Flúðum, Klaustri, Hamri og í Vík. Icelandair hótel reka einnig sumarhótelkeðjuna Hótel Eddu, með tíu hótel um land allt. Um er að ræða alls 1.937 herbergi á landinu öllu, 876 í Reykjavík og 450 herbergi á landsbyggðinni í rekstri allt árið en þar að auki 611 Eddu hótelherbergi í sumarrekstri. Þá stefna Icelandair Hotels að opnun nýs hótels við Austurvöll í samstarfi við Hilton árið 2019.

Í herbergjum talið þá eru Íslandshótel stærsta hótelfyrirtæki landsins en þar á eftir koma hótel Icelandir Group.

Samhliða ákvörðun um að setja Icelandair Hotels í söluferli hefur verið ákveðið að Iceland Travel og VITA verði hluti af kjarnastarfsemi Icelandair Group. Tilgangur þess er að styrkja enn frekar sölustarfsemi á pakkaferðum og tengdum þjónustuþáttum innan Icelandair Group.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …