Starfsfólk Isavia fagnaði í gær níu milljónasta farþeganum sem fór um Keflavíkurflugvöll í ár. Hann kom til landsins frá Pittsburg í Bandaríkjunum með flugvél Wow Air. Þau heppnu eru Olive Ho frá Hong Kong og Chun Liang Li frá Taívan. Þau millilentu á Keflavíkurflugvelli um morguninn en héldu síðan áfram för sinni til Kaupmannahafnar.
Í tilkynningu frá Isavia segir að hin heppnu voru leyst út með gjöfum frá Bláa lóninu og veitingastaðnum Hjá Höllu. „Þau voru afar ánægð með móttökurnar við komuna til landsins, sem kom þeim eðlilega mjög á óvart. Oilve Ho segir að hún hafi einu sinni áður komið til Íslands en muni sannarlega gera sér ferð aftur hingað til lands.“
Níu milljón farþegar hafa nú það sem af er árinu farið í gegnum Keflavíkurflugvöll og er það í fyrsta sinn sem því takmarki er náð. Þar er samtals um að ræða komu-, brottfarar- og skiptifarþega.