Samfélagsmiðlar

Tap WOW margfaldaðist

Viðsnúningurinn sem átti að verða á rekstri WOW air í fyrra skilaði sér ekki og félagið var rekið með miklu tapi.

wow radir

Lágu fargjöldin hjá WOW stóðu ekki undir rekstri félagsins í fyrra.

Það var fyrst í júlí í fyrra sem WOW air birti afkomu sína fyrir árið 2017 og í ljós kom að félagið tapaði 2,3 milljörðum króna. Árin tvö þar á undan var reksturinn réttum megin við núllið. Nokkrum vikum eftir að afkoman 2017 var opinberuð hófst margumrætt skuldabréfaútboð WOW og í gögnum sem því fylgdi sagði að tapreksturinn hefði haldið áfram á fyrri helmingi ársins 2018.

Aukin áhersla á sölu farmiða á dýrara farrými og hærri tekjur af aukaþjónustum áttu hins vegar að snúa rekstrinum við og hagnaður yrði á seinni hluta síðasta árs. Þó var gert ráð fyrir tapi fyrir allt árið 2018 en methagnaði á þessu ári.

Það varð þó ljóst þegar WOW birti uppgjör sitt fyrir fyrstu níu mánuðina í fyrra að viðsnúningurinn hafði ekki orðið því flugfélagið var rekið með um fjögurra milljarða króna tapi. Og ekki tók betra við síðustu þrjá mánuði ársins því samkvæmt heimildum Túrista þá nam heildartap WOW air á síðasta ári rétt um 20 milljörðum króna. Til samanburðar var tap af rekstri Icelandair Group 6,7 milljarðar kr.

Sem fyrr segir er afkoman í fyrra langtum verri en forsvarsfólk WOW air kynnti í tengslum við skuldabréfaútboð félagsins. Og við því var búist því í bréfi til eigenda skuldabréfanna, sem Skúli sendi í lok nóvember,  þá segir hann að afkoman á fjórða ársfjórðungi hafi verið mun verri en gert hafi verið ráð fyrir. Ástæðurnar lágu í hækkandi olíuverði, gjaldþroti Primera Air og neikvæðri umræðu um félagið að mati forstjórans.

Eins og áður hefur komið fram þá samþykkti stjórn Icelandair Group að hefja viðræður við WOW air um aðkomu að rekstri félagsins í gærkvöld. Reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir í síðasta lagi á mánudag.

 

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …