Samfélagsmiðlar

Ennþá óljóst hvernig selja á flugið til Suður-Evrópu

WOW air var stórtækt í áætlunarflugi til sólarlanda og forsvarsmenn Icelandair hafa gefið út að félagið stefni á aukin umsvif á þeim markaði. Það liggur þó ekki fyrir með hvaða hætti það verður gert.

Við sundlaugarbakka á Tenerife.

Aðeins tveimur vikum eftir fall WOW air þá boðaði Icelandair aukið flug til sólarlanda í þotum með eitt farrými. Það fylgdi þó ekki sögunni hvort Icelandair ætlaði að selja þessar ferðir beint á heimasíðu sinni eða halda áfram að fljúga aðeins til Tenerife, Kanarí og Alicante í leiguflugi með viðskiptavini ferðaskrifstofa. WOW air var hins vegar stórtækt í hefðbundnu áætlunarflugi til þessara sólarstaða og flaug þegar mest lét allt að þrjár ferðir í viku til Tenerife auk reglulegra brottfara til Alicante og Las Palmas.

Nú þegar rúmur mánuður er liðinn frá því að stjórnendur Icelandair tilkynntu um þessi áform sín í suðurhluta álfunnar er ennþá óljóst hvernig staðið verði að sölu á flugferðunum. Í svari Ásdísar Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair, segir að málið sé í vinnslu og ákvörðun liggi ekki fyrir.

Ein þeirra ferðaskrifstofa sem hefur keypt sæti í leiguflugi Icelandair til sólarlanda er Úrval Útsýn og í viðtali við Túrista, daginn eftir að ófullmótuð áform Icelandair voru birt, sagði Þórunn Reynisdóttir, forstjóri ferðaskrifstofunnar, að hún teldi það ekki skynsamlegt hjá félaginu að hefja áætlunarflug til Suður-Evrópu. Fyrirtækið ætti frekar að einbeita sér að áætlunarflugi til áfangastaða sem skila fleiri ferðamönnum til Íslands. Það eru nefnilega nær eingöngu Íslendingar sem sitja í þotunum sem fljúga héðan til áfangastaða eins og Tenerife, Las Palmas og Alicante.

Sem fyrr segir er ennþá ekki ljóst hvort Icelandair selji sætin beint í Spánarflugið en það á að hefjast á í byrjun næsta árs. Ein skýrining á því að óvissa ríkir ennþá um málið kann að vera sú að stjórnendur Icelandair hafi viljað gefa það strax út, eftir fall WOW, að þeir ætli sér aukin umsvif í sólarlandaflugi og þar með vonast til að fæla aðra frá. Heimsferðir hafa til að mynda samið við Norwegian um flug til Kanarí og Tenerife í vetur og af því tilefni sagði Tómas J. Gestsson, forstjóri Heimsferða, að það væri ekki ósennilegt að fleiri áfangastaðir ættu eftir að bætast við.

Auk Heimsferða þá eru Úrval-Útsýn og Vita umsvifamestu ferðaskrifstofur landsins og er sú síðastnefnda dótturfélag Icelandair Group.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …