Samfélagsmiðlar

Fargjöldin frá Akureyri til Hollands hafa hækkað hratt

Í dag var komið að jómfrúarferð Transavia frá Rotterdam til Akureyrar. Lægstu fargjöldin, báðar leiðir, eru á um 50 þúsund krónur í dag.

Þota hollenska lággjaldaflugfélagsins Transavia á Akureyrarflugvelli í morgun.

Hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel og lággjaldaflugfélagið Transavia standa í sumar fyrir reglulegum flugferðum milli Akureyrar og Rotterdam. Í dag var fyrsta ferðin af sextán á dagskrá og af því tilefni var tilkynnt að átta ferðir í viðbót verði í boði til Akureyrar í vetur en þá frá Amsterdam.

Í dag kosta ódýrstu flugmiðarnir í sumar, báðar leiðir, með Transavia frá Akureyri til Rotterdam um 50 þúsund krónur. Oftast er fargjaldið þó nokkru hærra. Þetta er töluverð breyting á stuttum tíma því fyrir mánuði síðan var hægt að fá farmiða á mörgum dagsetningum á rétt um 35 þúsund krónur líkt og Túristi greindi frá. Af þessari verðþróun að dæma þá hefur nýju flugleiðinni verið vel tekið.

Transavia hefur um langt skeið flogið til Íslands frá París á sumrin og í júlí hefst áætlunarflug félagsins frá Amsterdam. En sem fyrr segir hefst flug frá hollensku höfuðborginni til Akureyrar í vetur á vegum Voigt Travel og Transavia. „Sem ferðaskrifstofa þurfum við stöðugt að skapa okkur sérstöðu,“ segir Cees van den Bosch, forstjóri Voigt Travel, í tilkynningu. „Ísland hefur aldrei verið vinsælla, en aðallega fyrir stutt stopp sem viðkomustaður, og þessi magnaði áfangastaður á betra skilið en það. Þess vegna höfum við vísvitandi valið að fljúga til Akureyrar til að gera farþegum okkar kleift að ferðast strax utan alfaraleiða og taka sér tíma til að kanna landið. Norðurhluti Íslands er enn að miklu leyti ósnortinn og þar má finna alveg jafnmikið af fossum, svörtum ströndum, eldfjöllum og leirböðum og á Suðvesturlandi.“

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …