Samfélagsmiðlar

Ferðamannastraumurinn stenst ekki lengur samanburð við 2016

Fjöldi ferðamanna hér á landi síðustu mánuði hefur verið minni en síðustu tvö ár en þó nokkru meiri en fyrir þremur árum síðan. Á því varð breyting í síðasta mánuði.

Frá Íslandi flugu 231 þúsund erlendir ferðamenn í júlí. Þar af voru Bandaríkjamenn um 28 prósent af heildinni. Hlutfallið var 37 prósent í júlí í fyrra.

Við gjaldþrot WOW air fækkaði erlendum ferðamönnum hér á landi verulega í samanburði við síðustu tvö ár. Fjöldinn var þó alltaf nokkru meiri en árið 2016 og þannig komu hingað um 442 þúsund ferðamenn fyrstu þrjá mánuðina eftir fall WOW. Á sama tímabili árið 2016 voru þeir um tíund færri.

Í nýliðnum júlí snérist dæmið hins vegar við því þá komu hingað aðeins færri ferðamenn en í júlí 2016. Þá voru erlendu ferðamennirnir um 236 þúsund talsins eða fimm þúsund fleiri en í júlí í ár. Ferðamannastraumurinn var engu að síður miklu meiri en í júlí árin þar á undan eins og sjá má á súluritinu.

Þess ber að geta að síðustu mánuði hafa tölur Hagstofunnar sýnt nokkru minni samdrátt í gistinóttum útlendinga hér á landi en sem nemur fækkun erlendra ferðamanna á Keflavíkurflugvelli.

Sem fyrr fækkar Bandaríkjamönnum hér á landi mest eða um 36 prósent í júlí. Til samanburðar þá fækkaði flugferðunum milli Íslands og Bandaríkjanna um 39 prósent í júlí líkt og samantekt Túrista sýndi. Hlutfallslega var fækkun breskra og þýskra ferðamanna líka í takt við samdrátt í flugi.

Athygli vekur að þrátt fyrir tíðari brottfarir frá Sviss og Noregi í júlí þá fækkaði ferðamönnum frá þessum tveimur löndum. Skýringin á því kann að vera sú að hlutfall tengifarþega á þessum flugleiðum sé hátt hjá Icelandair eða að aðrar þjóðir nýti sér Íslandsflug frá Noregi og Sviss í auknum mæli.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …