Samfélagsmiðlar

Helmingi færri ferðamenn en reiknað var með

Þær tölur sem Morgunblaðið birti í dag af mögulegum umsvifum Play ganga ekki upp. Ekki var þó ætlunin að villa um fyrir fólki.

Áform flugfélagsins Play gera ráð fyrir að farþegar þess verði samtals 4,3 milljónir á næstu þremur árum. Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni Hundraða milljarða hagsmunir undir. Þar kemur jafnframt fram að á þessu þriggja ára tímabili ætti Play að flytja um 1,7 milljónir ferðamanna til Íslands.

Þessar tvær stærðir ganga þó ekki upp í þessu samhengi nema þrír af hverjum fjórum farþegum Play verði erlendir ferðamenn. Ástæðan er sú að flugfarþegar eru ávallt taldir á hverjum fluglegg, bæði þegar þeir fljúga til og frá landinu. Ferðamaðurinn er aftur á móti aðeins talinn einu sinni við landamærin.

Af þeim sökum beindi Túristi þeirri spurningu til Boga Guðmundssonar, eins af framkvæmdastjórum Play og viðmælanda Morgunblaðsins í dag, hvort ekki væri réttara að tala um að Play gæti flutt 850 þúsund ferðamenn til landsins en ekki 1,7 milljónir. Í svari sínu segir Bogi að það sé rétt athugað og ferðamannafjöldinn hjá Play verði þá nær 900 þúsundum. Bogi bætir því við að ekki hafi verið ætlunin að villa um fyrir fólki.

Líkt og áður hefur komið fram þá efndi Play til fjárfestafundar með forsvarsfólki íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í gær. Í fundarboði var bent á að áætlanir flugfélagsins gerðu ráð fyrir að félagið myndi ferja 1,7 milljónir ferðamanna til Íslands á næstu þremur árum. Nú liggur hins vegar fyrir að ferðamennirnir verða um helmingi færri.

Á það ber líka að líta að Play ætlar að hefja flug á flugleiðum sem nú þegar eru í boði í flugi til og frá Keflavíkurflugvelli. Félagið mun því væntanlega ekki verða hrein viðbót við það sem fyrir er á markaðnum heldur taka hluta af þeim farþegum sem annars hefðu valið Icelandair, Delta, SAS, Norwegian eða Transavia.

Nú getur þú tekið þátt í að styrkja og efla útgáfu Túrista

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …