Nú í haust hafa Íslendingar bókað fleiri gistinætur á íslenskum hótelum en í september og október í fyrra samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Niðurstaðan fyrir nóvember liggur ekki fyrir en útlit er fyrir að töluverð aukningu því í síðasta mánuði voru hótelreikningar upp á 618 milljónir króna greiddir með íslenskum greiðslukortum. Þetta er 21 prósent aukning frá nóvember í fyrra samkvæmt nýbirtum kortaveltutölum Rannsóknarmiðstöðvar verslunarinnar.
Og það er fleira í nýjum tölum Rannsóknarmiðstöðvar verslunarinnar sem gefur til kynna að Íslendingar hafi ferðast meira innanlands í nóvember. Þannig jukust úttektir á íslensk greiðslukort um 6,5 prósent á veitingahúsum landsins og veltan á söfnum og galleríum jókst um nærri þrjá fjórðu. Einnig greiddu Íslendingar meira fyrir afnot af íslenskum bílaleigubílum í síðasta mánuði.