„Við erum viljandi, út af krefjandi aðstæðum á Via-markaði, að stýra tekjumynduninni inni á To og From,” sagði Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Icelandair Group, á afkomufundi samsteypunnar í apríl í fyrra. Vísaði hún þar til þess að markaðurinn fyrir tengiflug (Via) væri erfiður.
Áherslan hjá Icelandair á nýliðnu ári var þar með á farþega á leið til Íslands (To) og sérstaklega eftir fall WOW air í lok mars. Þessi hópur stækkaði því hratt í fyrra eða um fjórðung frá árinu á undan og taldi samtals 1,9 milljón farþega samkvæmt tilkynningu frá Icelandair.
Erlendir ferðamenn eru bróðurpartur þeirra farþega sem flokkaði eru sem „To-farþegar“ hjá Icelandair en til hópsins teljast líka Íslendingar búsettir í útlöndum. Svokallaðir „From-farþegar“ eru svo þeir sem hefja ferðalagið á Íslandi og eru því í langflestum tilfellum búsettir hér á landi, bæði Íslendingar og útlendingar.
Vegna fyrrnefndrar áherslubreytingar í sölustarfi Icelandair þá hefur tengifarþegum félagsins fækkað og á síðasta ári fór hlutfallið niður í það sem það var árið 2012 eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.
Á þessu ári verður áherslan sú sama og í fyrra samkvæmt því sem haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, í tilkynningu. „Áætlanir okkar hafa því gengið upp og við munum halda áfram á sömu braut á árinu 2020 með uppstillingu leiðakerfisins og áherslum í sölu- og markaðsstarfi okkar. Við gerum ráð fyrir 25-30 prósent aukningu á farþegum til landsins á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Sveigjanleiki í leiðakerfi félagsins gerir okkur kleift að bregðast hratt við breytingum í umhverfinu og mæta eftirspurn.“