„Við erum að bjóða fólki að koma heim á morgun og erum að hafa samband við þá farþega sem eiga pantaða heimferð með okkur til Íslands á næstu dögum,“ segir Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval-Útsýn. Tvær þotur fara til Tenerife og ein til Las Palmas á Kanarí á morgun.
Þórunn, sem situr núna í kvöld vaktina í þjónustuveri Úrval-Útsýn, segir í samtali við Túrista að viðbrögð þeirra farþega sem búið er að hafa samband við hafa verið góð. Hún bendir líka á að það sé lítið fyrir fólk að hafa úti eftir að útgöngubann var sett á Spáni. Einnig er óljóst hversu lengi hótelhaldarar geta haldið veitingastöðum, börum og annarri þjónustu opinni miðað við núverandi aðstæður.
Þórunn segir að farið heim á morgun kosti þá sem eiga bókað far með Úrval-Útsýn ekki neitt aukalega. Sama gildir um farþega systurfyrirtækja ferðaskrifstofunnar, þ.e. Plúsferða og Sumarferða. Mögulega verða laus sæti fyrir fleiri farþega frá Tenerife og þau verða þá til sölu á heimasíðu Úrval-Útsýn.