Horfurnar fyrir ferðaþjónstuna í heiminum hafa versnað síðustu daga og nú gerir ný spá Tourism Economics ráð fyrir að minnsta kosti 10,5 prósent samdrætti í ferðalögum fólks milli landa. Ástæðan er útbreiðsla kórónaveirunnar og þau áhrif sem hún hefur haft á ferðalög.
Þessi spá er töluvert neikvæðari en sú sem Tourism Economics birti fyrir hálfum mánuði síðan. Þá gerðu greinendur fyrirtækins ráð fyrir 1,5 prósent færri erlendum ferðamönnum á heimsvísu. Nú hefur kórónaveiran aftur á móti dreift sér víðar og þar með gæti eftirspurn eftir ferðalögum fyrst orðið eðlilega á ný í júlí samkvæmt reiknilíkönum bresku greinendanna.
Ef áhrifa veirunnar gætir ennþá lengur þá má aftur á móti búast við að samdrátturinn á heimsvísu, þegar horft er til fólks sem ferðast milli landa, gæti endað í 18 prósentum samkvæmt Tourism Economics.