Samfélagsmiðlar

Telur að önnur flugfélög myndu leysa Icelandair af hólmi

Það gæti tekið lengri tíma fyrir hagkerfið að taka við sér aftur ef Icelandair yrði gjaldþrota að mati seðlabankastjóra. Hann segist þó ekki sjá svo mikil áhrif til skemmri tíma.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Hluthafar Icelandair Group eiga að koma saman seinnipartinn á morgun og greiða atkvæði um að auka hlutafé félagsins í þeim tilgangi að bæta úr slæmri lausafjárstöðu. Stjórnendur Icelandair höfðu sett sér það markmið að ná langtíma kjarasamningum við flugstéttir fyrir fundinn en Flugfreyjufélag Íslands hafnaði í gær svokölluðu lokatilboði flugfélagsins.

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, var spurður út í þessa tvísýnu stöðu Icelandair í Kastljósi RÚV í gærkvöld og sagðist hann ekki telja að gjaldþrot flugfélagsins hefði mikil áhrif til skemmri tíma. Vísaði Ásgeir þar til þess að spár bankans geri ráð fyrir því að hingað komi ekki margir ferðamenn það sem eftir lifir árs.

„Þegar litið er fram munu koma önnur flugfélög. Þessi þekking er til staðar í landinu,“ sagði Ásgeir. Hann bætti við að með falli Icelandair gæti hagkerfið orðið seinna að taka við sér eftir COVID-19 faraldurinn.

Segja má að þessi greining seðlabankasstjóra sé í takt við það sem Harpa Jónsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs bankans, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið fyrir tveimur árum síðan. Þá var umræðan um mögulegt greiðslufall Icleandair og WOW air að komast í hámæli. Fullyrti Harpa að ef eftirspurn væri til staðar þá væri alltaf hægt að halda úti flugleiðum hingað með hagnaði og því myndu aðrir grípa boltann.

Það kom þó í ljós að það skarð sem WOW air skyldi eftir sig var að mestu ófyllt ári eftir gjaldþrot félagsins. Ástæðan var líklegast sú að WOW air gerði út á tengifarþega að miklu leyti og það var því eftir litlu að slægjast fyrir erlend flugfélög.

Þess má geta að Harpa er í dag framkvæmdastjóri LSR – Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sem er níundi stærsti hluthafinn í Icelandair Group með um tvö prósent hlut.


Kæri lesandi, nú á tímum Covid-19 þá stendur Túristi vaktina. Lesturinn á síðuna hefur aukist gríðarlega en auglýsingatekjurnar lækkað mjög hratt. Af þeim sökum bendi ég tryggum lesendum á að hægt er að leggja útgáfunni lið með frjálsum framlögum (sjá hér).
Með fyrirfram þökk,
Kristján Sigurjónsson

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …