Samfélagsmiðlar

Flugfreyjur og flugþjónar felldu nýjan kjarasamning

Forstjóri Icelandair Group segir að nú verði að skoða aðra möguleika í stöðunni.

Félagsmenn Flugfreyjufélags Íslands hafa fellt nýjan kjarasamning við Icelandair sem skrifað var undir hjá Ríkissáttasemjara þann 25. júní. Í tilkynningu frá Icelandair Group segir að nú verði metið hvaða möguleikar eru í stöðunni.

„Við höfum lagt allt kapp á að ná samningum við Flugfreyjufélag Íslands undanfarnar vikur og mánuði. Með þessum samningi gengum við eins langt og mögulegt var til að koma til móts við samninganefnd FFÍ. Þessi samningur hefði tryggt ein bestu kjör fyrir störf flugfreyja og flugþjóna sem þekkjast á alþjóðamarkaði en á sama tíma aukið samkeppnishæfni félagsins til framtíðar. Þetta eru því mikil vonbrigði. Nú verðum við að skoða þá möguleika sem eru í stöðunni og munum gera það hratt og örugglega. Það hvílir mikil ábyrgð á okkur sem stjórna félaginu að tryggja rekstrargrundvöll þess til framtíðar og þar með verðmæti fyrir þjóðarbúið og mikilvæg störf, þar á meðal störf flugfreyja og flugþjóna,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu.  

Í fréttum RÚV kom fram að 72,65 prósent félaga í Flugfreyjufélagi Íslands hafi greitt atkvæði gegn samningnum en 26,46 greiddu atkvæði með honum. 0,89 prósent skiluðu auðu.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …