Samfélagsmiðlar

Meiri samdráttur í hótelgistingu hér á landi en á hinum Norðurlöndunum

Nýliðin sumarvertíð stóð ekki undir nafni. Á íslenskum hótelum var niðursveiflan meiri að jafnaði en á hinum Norðurlöndunum.

Gistinóttum útlendinga fækkaði um 86% í höfuðborginni í sumar.

Það var víða slakað á ferðatakmörkunum í Evrópu í sumar en reglurnar voru þó mismunandi milli landa. Líka innan Norðurlandanna. Útlendingar máttu til að mynda ekki gista í Kaupmannahöfn í sumarbyrjun. Og Finnar og Norðmenn takmörkuðu ferðalög til sín meira en mörg önnur Evrópuríki gerðu, þar á meðal Ísland. Svíþjóð hefur haldið sínum landamærum opnum allt frá því að Covid-19 faraldurinn hófst.

Þrátt fyrir ólíkar aðgerðir þá hefur ástandið komið nokkuð jafnt niður á hótelum á Norðurlöndum fimm þegar horft er til gistinátta útlendinga. Fámennið hér á landi gerir það hins vegar að verkum að samdrátturinn á íslensku hótelunum var nokkru meiri en í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan.

Þegar tölur fyrir sumarmánuðina þrjá eru skoðaðar þá kemur í ljós að gistinóttum útlendinga, á íslenskum hótelum, fækkaði um 85 prósent í sumar. Samdrátturinn var aðeins meiri í Noregi og Finnlandi en minni í Svíþjóð og Danmörku. Þar í landi var hann minnstur eða 79 prósent.

Þegar gistinætur heimamanna sjálfra eru teknar með í reikninginn þá lítur dæmið öðruvísi út. Aukin sókn Finna, Svía og Dana í hótelgistingu í sínum heimalöndum gerði það að verkum að þar var samdrátturinn í gistinóttum á hótelum rúmlega fjörutíu prósent í sumar. Þrátt fyrir að útlendingarnir hafi haldið sig að mestu fjarri.

Í Noregi var niðursveiflan þó álíka og hér á landi því í heildina fækkaði gistinóttum á norskum hótelum 62 prósent í sumar. Hér landi var hún þó ennþá meiri eða 66 prósent. Skýringin liggur ekki bara í fámenni íslensku þjóðarinnar heldur líka þeirri staðreynd að stór meirihluti þjóðarinnar býr á suðvesturhorninu en þar eru einmitt hótelin langflest.

Þannig sýndi nýleg samantekt Túrista að fjölgun gistinátta Íslendinga á reykvískum hótelum í ágúst var rétt um eitt prósent af þeim fjölda sem erlendu ferðamennirnir skildu eftir sig.

Þeir útlendingar sem bjuggu á norrænum hótelum í sumar kusu oftar en ekki að fara út á land. Samdrátturinn í gistinóttum erlendra ferðamanna var nefnilega hlutfallslega meiri í höfuðborgum en á landsvísu eins og sjá má á neðri töflunni.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …