Samfélagsmiðlar

Nú kemur í ljós hvort PAR Capital hefur selt fleiri hlutabréf í Icelandair

Gengi bréfa í Icelandair hefur lækkað töluvert frá útboðinu í síðasta mánuði. Verðþróunin varð önnur í kjölfar útboðs Finnair í sumar.

PAR Capital Management er til húsa á 48. hæð í Claredon háhýsinu sem gnæfir yfir Boston.

Þegar mest lét átti bandaríski vogunarsjóðurinn PAR Capital Management 745 milljónir hluta í Icelandair Group. Bróðurpartinn af þessari eign keypti sjóðurinn í byrjun apríl í fyrra á 5,6 milljarða króna og bætti svo við bréfum mánuðina á eftir og varð stærsti hluthafinn í Icelandair.

Allt frá því í vor hefur PAR Capital hins vegar selt bréf í Icelandair í smáskömmtun og hefur eign sjóðsins þá dregist saman um nokkrar milljónir hluta í viku hverri.

Vogunarsjóðurinn tók ekki þátt í hlutafjárútboðinu í síðasta mánuði og á í dag rétt um 544 milljónir hluta í Icelandair Group samkvæmt nýjasta listanum yfir stærstu hluthafa samsteypunnar. Undir lok vikunnar ætti uppfært yfirlit að birtast á heimasíðu Icelandair og þá kemur í ljós hvort fjöldi bréfa í eigu PAR Capital hefur dregist enn frekar saman.

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað töluvert frá útboðinu fyrir þremum vikum síðan. Útboðsgengið var ein króna á hlut en er núna 87 aurar. Lækkunin nemur 13 prósentum.

Það eru ekki mörg önnur flugfélög sem hafa efnt til hlutafjárútboðs í kórónuveirukreppunni. Það gerði þó Finnair í lok júní og var útboðsgengið 0,4 evrur á hlut. Til samanburðar var geng hlutabréfa í Finnair 1,1 evra í ársbyrjun en þá var hver hlutur í Icelandair metinn á 7,8 krónur.

Töluverð umframeftirspurn var eftir nýju hlutbréfunum í Finnair líkt og einnig varð raunin hjá Icelandair. Eftir útboðið í Finnlandi hækkaði gengi Finnair um ríflega helming. Það hefur svo lækkað á ný og er núna 0,39 evrur á hlut eða 2,5 prósentum undir útboðsgengi.

Þess má geta að finnska ríkið á rúmlega helming í Finnair og hélt þeim hlut í útboðinu.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …