Samfélagsmiðlar

Opið fyrir bókanir á ferðum sem eru ekki á flugáætlun

Það voru aðeins átján brottfarir á dagskrá Icelandair í þessari viku en helmingnum hefur verið aflýst. Til viðbótar selur félagið sæti í ferðir til borga sem eru ekki á flugáætluninni og þotur félagsins hafi ekki komið til svo vikum skiptir.

Þotur Icelandair munu eingöngu fljúga til Amsterdam, Boston, Kaupmannahafnar og London fram til lok næsta mánaðar samkvæmt flugáætlun félagsins. Sú tók gildi á mánudaginn en hefur nú þegar riðlast því allar brottfarir til bresku höfuðborgarinnar í þessari viku hafa fallið niður. Einnig ferðin til Kaupmannahafnar á miðvikudag.

Það að stór hluti ferða Icelandair falli niður nú í haust er engin nýlunda líkt og Túristi fjallaði um fyrr í þessum mánuði. Þá gerði flugáætlun félagsins aftur á móti ráð fyrir miklu fleiri ferðum en nú er. Þannig voru sextíu og níu brottfarir á áætlun félagsins í þarsíðustu viku en þær hefðu átt að verða átján í þessari viku. Helmingi þeirra hefur verið aflýst.

Það vekur líka athygli að Icelandair er með opið fyrir bókanir í flugferðir næstu daga sem eru ekki einnu sinni á hinni nýju flugáætlun. Þannig er hægt bóka miða til Parísar, Berlínar, Stokkhólms og Óslóar næstu daga jafnvel þó þotur Icelandair hafi ekki sést í þessum borgum svo vikum skiptir.

Það er því ekki hlaupið að því að bóka flug með Icelandair þessa dagana og að sögn Brynhildar Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, þá hafa margar kvartanir borist þangað vegna þessa. „Ekki síst vegna þess að fólk getur ekki planað ferðir, vitandi að það eru meiri líkur en minni að ferðin verði aldrei farin.“

Neytendastamtökin birtu í gær frétt á heimasíðu sinni þar sem bent er á rétt farþega Icelandair á skaðabótum ef flugi er aflýst með stuttum fyrirvara. Samgöngustofa úrskurðaði til að mynda í vikunni að Icelandair ætti að greiða tveimur farþegum félagsins 400 evrur á mann vegna niðurfellingar á flugi.

Icelandair er vissulega ekki eina flugfélögin sem gerir breytingar á flugáætlun sinni vegna ástandsins sem nú ríkir. Aðdragandi breytinga er þó í mörgum tilfellum mun lengri en hjá Icelandair. Það sést til að mynda á því hve mörg erlend flugfélög hafa nú þegar tekið út áætlunarflug til Íslands næstu vikur.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …