Samfélagsmiðlar

Stærsta ferðaskrifstofan seld úr safni Arion banka

Nú stendur yfir fjárhagsleg endurskipulagning á danska fyrirtækinu Travelco Nordic sem Arion banki tók yfir í fyrra. Heimsferðir fara einnig út úr þessu danska móðurfélagi.

Skjámynd af vef Travelco Nordic.

Primera Travel Group, ferðaskrifstofuveldi Andra Más Ingólfssonar, var fært úr íslensku móðurfélagi yfir í danskt stuttu eftir gjaldþrot Primera Air haustið 2018. Arion banki tók svo danska móðurfélagið yfir rúmu hálfu ári síðar og þá var ætlunin að selja þær sjö ferðaskrifstofur sem heyrðu undir fyrirtækið. Aðeins ein þeirra seldist áður en heimsfaraldurinn lamaði öll ferðalög á milli landa og sömuleiðis áhuga fjárfesta á ferðaskrifstofum.

Fyrr í þessum mánuði óskuðu forráðamenn Travelco Nordic svo eftir leyfi danskra dómstóla fyrir einskonar greiðsluskjóli. Í Danmörku þýðir það þó að fyrirtækið fær yfir sig umsjónarmenn sem hafa leyfi til að selja eignir fyrirtækisins.

Fyrir helgi gáfu þeir út að frestur til að bjóða í eignir Travelco Nordic myndi renna út á hádegi síðastliðinn föstudag. Og nú hefur Bravo Tours, stærsta ferðaskrifstofan í eigu Travelco Nordic verið seld samkvæmt frétt jóska fréttamiðilsins Herning Folkeblad. Ekki liggur þó fyrir hver keypti.

Danski lögmaður Troels Tuxen, annar umsjónarmanna Travelco Nordic, staðfestir söluna í svari til Túrista og segir Heimsferðir einnig hafa verið seldar en vísar á Jón Karl Ólafsson, stjórnarformann Travelco Nordic, varðandi nánari upplýsingar um stöðu íslensku ferðaskrifstofunnar.

„Heimsferðir verða áfram beint í eigu Arion banka og það verða engar breytingar á rekstri þess fyrirtækis vegna þessara breytinga í Skandinavíu,“ segir Jón Karl í svari til Túrista. Hann segir að rekstur Bravo Tours hafi gengið best af þeim fyrirtækjum sem heyra undir Travelco Nordic en reikna megi með því að fleiri vörumerki í eigu fyrirtækisins verði seld á næstu dögum. 

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …