Samfélagsmiðlar

Tekjurnar lækkuðu ennþá meira hjá Finnair en Icelandair

Finnska flugfélagið birti uppgjör sitt í morgun. Þar nýttust engar bætur, tekjuskattur eða leiðréttingar á eldsneytisvörnum til að koma afkomunni réttum megin við núllið.

finnair a

Á meðan Icelandair hefur sérhæft sig í tíðum ferðum til fjölda áfangastaða í Norður-Ameríku þá hefur fókusinn hjá Finnair verið á Asíu. Þotur félagsins fljúga þannig reglulega til fjölda borga í Kína, Japan og S-Kóreu. Heimsfaraldurinn sem nú gengur yfir takmarkar hins vegar mjög umsvif í ferðum milli heimsálfa og tekjur Finnair á þriðja fjórðungi ársins drógust saman um 89 prósent.

Til samanburðar nam tekjusamdrátturinn hjá Icelandair 81 prósenti á þessu sama tímabili. Afkoma Icelandair var þó í plús vegna bótagreiðslna frá Boeing, eignfærslu á tekjuskatti og endurflokkun eldsneytisvarna eins og segir í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í fyrradag.

Finnarnir höfðu þó enga svona liði í sínum bókum til að rétta afkomuna af. Þar á bæ varð niðurstaðan því tap upp á 30 milljarða íslenskra króna á þriðja ársfjóðrungi samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun.

Í tilkynningu er haft eftir Topi Manners, forstjóra Finnair, að fraktflutningar séu í raun eini hluti starfseminnar þar sem eftirspurn er góð. Hann segir jafnframt að félagið ætli sér að skera kostnað niður um 140 milljónir evra, um 23 milljarða króna, fyrir ársbyrjun 2022. Þetta er töluverð viðbót við það sem áður hafði verið tilkynnt um.

Fækkun starfsfólks vegur þungt í niðurskurðinum en nýverið var tilkynnt um uppsagnir sjö hundruð starfsmanna félagsins. Í heildina hefur þá fækkað í starfsliði Finnair um ellefu hundruð manns frá því í byrjun þessa árs.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …