Samfélagsmiðlar

Þjálfunarflugstjórar Icelandair í eigin rekstur

Hjá V-one verður flugmönnum sem misst hafa vinnuna gert kleift að viðhalda starfsréttindum sínum og uppfylla kröfur um endurþjálfun. Fyrirtækið hefur einnig tekið að sér verkefni fyrir erlend flugfélög.

Starfsemi V-one fer að hluta til fram í TRU Flight Training við Flugvelli í Hafnarfirði.

V-one er nýtt íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjálfun og ráðgjöf fyrir flugmenn og flugfélög á alþjóðavísu. Fyrirtækið var stofnað af teymi þjálfunarflugstjóra Icelandair sem allir eiga það sameiginlegt að búa yfir víðtækri reynslu í starfi.

Hörður Þorvaldsson er einn þeirra og í samtali við Túrista segir hann markmiðið vera að nýta þá umgjörð, starfskrafta og þekkingu sem skapast hafi á Íslandi með kraftmiklum flugrekstri síðustu áratugi.

„V-one hefur þegar tekið að sér þjálfun fyrir erlend flugfélög sem býr til ný og gjaldeyrisskapandi störf og tekjur fyrir ferðaþjónustuna,“ bætir Hörður við.

Starfsemi V-one fer að hluta til fram í TRU Flight Training við Flugvelli í Hafnarfirði en þar er að finna flugherma fyrir Boeing 757, 767 og 737 MAX þotur. Icelandair er meirihluta eigandi í þjálfunarsetrinu.

„Með tilkomu V-one er flugmönnum sem misst hafa vinnuna hjá íslenskum flugfélögum á undanförnum mánuðum nú gert kleift að viðhalda starfsréttindum sínum og uppfylla kröfur um árlega endurþjálfun. Með því verða þeir samkeppnishæfir þegar flugiðnaðurinn tekur við sér á ný,“ segir Hörður.

Allri þjálfun flugmanna hjá Icelandair hefur hingað til verið sinnt innanhús að sögn Harðar. Aðspurður hvort nú verði breyting þar á segist hann ekki vita hvernig þessum málum verði háttað í framtíðinni hjá flugfélaginu. Stærsti hluti flugmannahópsins, sem sá um þjálfanir hjá Icelandair, er hins vegar núna í uppsögn.

Hörður ítrekar að V-one markaðssetur sig á erlendum markaði.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …