Að jafnaði voru farnar rétt rúmlega sjö áætlunarferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli í september en meðaltalið nam sextíu og sex brottförum á sama tíma í fyrra. Niðursveiflan var því 89 prósent en til samanburðar var hún 77 prósent í ágúst og 79 prósent í júlí.
Að þessu sinni stóð Icelandair fyrir rétt um 28 prósent af öllum áætlunarferðum frá landinu. Vægi félagsins hefur ekki áður verið svo lágt í þessum mánaðarlegu talningum Túrista á flugumferð en þær ná nokkur ár aftur í tímann.
Skýringin á þessum mikla samdrætti er sú að ferðum Icelandair fækkaði um 95 prósent í síðasta mánuði. Þotur félagsins flugu nefnilega aðeins 61 ferð til útlanda í september en fjöldinn var rúmlega þrettán hundruð í fyrra.
Flugferðum Wizz Air hingað til lands fækkaði miklu minna eða um rétt rúmlega helming. Þar með var þetta ungverska lágfargjaldaflugfélag álíka umsvifamikið í flugi til og frá Íslandi og Icelandair eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan.
Hið breska easyJet kemur svo þar á eftir en samdrátturinn í Íslandsflugi þess félags nam um helmingi að þessu sinni. Samtals buðu tíu flugfélög upp á áætlunarferðir frá Keflavíkurflugvelli í nýliðnum mánuði. Þau voru tuttugu og þrjú í fyrra.