Samfélagsmiðlar

Vilja samstarf um ferðalög milli Íslands og Kanaríeyja

Spænsk stjórnvöld vilja einfalda ferðalög til Kanaríeyja nú í heimsfaraldrinum.

Þúsundir Íslendinga dvelja í lengri eða skemmri tíma á Kanaríeyjum yfir vetrarmánuðina og jólaferðir þangað seljast vanalega upp með góðum fyrirvara. Til marks um það þá hafði sala á ferðum til Tenerife og Gran Canaria farið vel af stað áður en heimsfaraldurinn setti flest úr skorðum í mars.

Það eru því vafalítið margir Íslendingar sem eiga bókað far út til Kanaríeyja í desember. Fyrir þann hóp eru það jákvæð tíðindi að útbreiðsla Covid-19 á Tenerife og Gran Canaria hefur minnkað töluvert síðustu vikur. Á þeirri fyrrnefndu voru smitin komin niður 109 á hverja 100 þúsund íbúa nú í byrjun vikunnar en tíðnin er helmingi lægri á Gran Canaria.

Spænsk stjórnvöld vinna nú að því að einfalda fólki ferðalagið til eyjanna og liður í því er að koma á einskonar loftbrú til helstu markaðssvæða í norðurhluta Evrópu. Sendiherra Spánar í Noregi, sem einnig er sendiherra landsins gagnvart Íslandi, staðfestir í svari til Túrista áhuga Spánverja á að koma á þess háttar samstarfi við Íslendinga.

Sú leið sem spænsk stjórnvöld leggja til er að ferðafólk frá löndum þar sem smit eru færri en fimmtíu á hverja eitt hundrað þúsund íbúa verði ekki að fara í nein próf fyrir ferðalagið út.

Ef tíðni nýrra smita er hærri en fimmtíu þá verða farþegar að fara í próf tveimur sólarhringum fyrir brottför og niðurstaðan verður að sjálfsögðu að vera neikvæð. Nýgengi smita hér á landi í dag er 213.

Fyrir heimferðina frá Kanaríeyjum verða svo allir ferðamenn að láta skima sig í mesta lagi tveimur dögum fyrir heimferðina. Ef fólk smitast á meðan á dvölinni úti stendur þá sjá spænsk stjórnvöld þeim fyrir aðstöðu og uppihaldi í tengslum við sóttkví. Spánverjar ábyrgjast einnig læknisaðstoð fyrir þá sem þurfa á þess háttar að halda.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …