Stjórnendur Norwegian ætla að óska eftir einskonar greiðsluskjóli fyrir dótturfélög sín á Írlandi og móðurfélagið sjálft verður hluti af því ferli. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér seinnpartinn í dag. Flugfloti félagsins heyrir nær allur undir annað af þessum írsku félögum.
Á fundi með blaðamönnum nú fyrir stuttu sagði Jacob Schram að nú væri fókusinn á að finna lausn með kröfuhöfum sem myndi leiða til þess að félagið yrði ákjósanlegur fjárfestingakostur í framhaldinu.
Hann lýsti því jafnframt yfir að flugfloti félagsins væri of stór í dag og þá aðallega þegar kemur að breiðþotum. Þær hafa verið nýttar í flug frá Evrópu til Norður-Ameríku en einnig til Asíu. Schram sagðist sjá fyrir sér að Norwegian þyrfti að losna við helming þessara þota í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins á Írlandi.
Forstjóri lýsti því yfir að áfram væri ætlunin að bjóða upp á áætlunarflug milli heimsálfa þó umsvifin á þeim markaði yrðu minni.
Norwegian var orðið stærsta evrópska flugfélagið á JFK flugvelli í New York áður stjórnendur þess ákváðu að draga saman seglin í fyrra. Auk þess bauð félagið upp á áætlunarflug til fjölda annarra borga vestanhafs þegar allt stöðvaðist vegna útbreiðslu Covid-19.
Auk þess var Norwegian það flugfélag sem flutti flesta farþega milli Spánar og Íslands.