Það búa um 45 þúsund Íslendingar í útlöndum og þrátt fyrir ástandið og kröfuna um sóttkví þá má gera ráð fyrir að fjöldi ætli sér að koma heim fyrir jól. Þá horfa sennilega margir til Icelandair en gallinn er sá að hin uppfærða flugáætlun félagsins nær aðeins til 29. nóvember.
Í bókunarvélinni á heimasíðu félagsins er hægt að finna fjölda ferða en líkt og Túristi hefur fjallað um þá hefur lítið verið að marka bókunarvél félagsins í haust. Icelandair hefur nefnilega haft þann háttinn á að hafa á boðstólum flug til fjölda margra borga en svo aflýsa nærri því öllu tveimur dögum fyrir brottför. Þetta hefur ekki tíðkast hjá leiðandi flugfélögum í Evrópu.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í svari til Túrista að ætlunin sé að hafa jólaáætlunina klára í þessari viku.
Til samanburðar má nefna að jóladagskrá færeyska flugfélagsins Atlantic Airways birt fyrir nokkru síðan. Þar er gert ráð fyrir aukaferðum fleiri ferðum til Danmerkur og líka til Bergen í Noregi. Til norsku borgarinnar hefur Icelandair flogið um jól og áramót en ekki að þessu sinni samkvæmt bókunarvél félagsins. Einnig verða jólaferðirnar til Billund færri en áður.
Bogi vill þó ekki meina að þessi munur á flugáætlun Atlantic Airways og Icelandair endurspegli ólíka sýn stjórnenda þeirra á mikilvægi félaganna fyrir samgöngur landanna tveggja.
„Við tökum hlutverk okkar í samgöngum til og frá landinu mjög alvarlega og það sama á við um hlutverk okkar gagnvart hluthöfum,“ segir Bogi.