Samfélagsmiðlar

Áfram hörð samkeppni þó Norwegian hverfi af braut

Lífróður Norwegian flugfélagsins er orðinn langur og nú reyna stjórnendur félagsins að sannfæra lánadrottna um gefa eftir stóran hluta af kröfum sínum. Á sama tíma hefur verið óskað eftir greiðsluskjóli fyrir dótturfélög norska félagsins á Írlandi þar sem bróðurpartur flugflotans er skráður.

Þrátt fyrir dökkt útlit hjá helsta keppinautinum þá er Rickard Gustafsson, forstjóri SAS, sannfærður um að samkeppnin verði áfram hörð. Þetta kemur fram í viðtölum sem forstjórinn hefur veitt síðustu daga í skandinavísku viðskiptapressunni.

Þar hefur Gustafsson bent á að í hvert sinn sem flugfélag hverfi af markaðnum í Evrópu þá komi önnur félög inn og stoppi í gatið á örskotsstundu. Reyndar má segja að það hafi ekki gerst á íslenska markaðnum við fall WOW air líkt og Túristi hefur áður rakið.

En forstjóri SAS er þó sannfærður um að samkeppnin verði áfram á hans markaði og það eru greinendur líka. Þannig telur Hans Jørgen Elnæs, í viðtali við Børsen, tölurverðar líkur á því að lággjaldaflugfélög blandi sér í slaginn um farþega á leið milli helstu áfangastaða í Skandinavíu. Ástæðan sé sú að forsvarsmenn þessara félaga sjái vel að SAS geti ekki keppt við þau í kostnaði.

Og segja má að þessi innreið lággjaldaflugfélaganna sé hafin því nú stundar Wizz Air innanlandsflug í Noregi af miklum krafti. Þar í landi hefur svo nýtt flugfélag boðað komu sína á markaðinn. Það félag er hefur fengið heitið Flyr og ætlunin er að hefja flugrekstur á fyrri hluta næsta árs. Það félag mun einbeita sér að ferðum innan Skandinavíu.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …