Í nýliðnum nóvember fækkaði áætlunarferðum frá Keflavíkurflugvelli um 96 prósent frá því fyrra samkvæmt talningu Túrista. Til samanburðar var samdrátturinn í október 91 prósent.
Í þeim mánuði voru áætlunarferðirnar héðan til útlanda að jafnaði nærri fimm á dag en núna var meðaltalið aðeins tvær á dag.
Megin skýringin á þessari viðbótar niðursveiflu í nóvember er sú staðreynd að erlendu flugfélögin gerðu flest hlé á ferðum sínum til Íslands um síðustu mánaðamót. Það á til að mynda við um easyJet, British Airways og Lufthansa.
Ferðafjöldinn hjá Icelandair hélst hins vegar nærri óbreyttur milli mánaða og þar með stóð félagið undir sjö af hverjum tíu ferðum frá Keflavíkurflugvelli í nóvember. Vægi félagsins var aftur á móti aðeins þrjátíu prósent í október.
Í heildina fækkaði áætlunarferðum Icelandair þó um 95 prósent í nóvember í samanburði við sama tíma í fyrra.