Samfélagsmiðlar

Ísland ekki á kortinu hjá nokkrum af stærstu flugfélögum Evrópu

Ef Evrópubúar geta að mestu að eins ferðast innan álfunnar næsta sumar þá eru vísbendingar um að staða Íslands sem áfangastaðar sé ekki nógu sterk.

Þotur Icelandair við Keflavíkurflugvöll.

Keflavíkurflugvöllur er eina norræna flughöfnin sem fjögur stærstu flugfélög Norður-Ameríku fljúga til. Og verulegur hluti af rekstri Icelandair byggir á ferðum til Bandaríkjanna og Kanada. Þetta tíðu ferðir vestur um haf skýra óvenju hátt hlutfall bandarískra ferðamanna hér á landi.

Sumarið 2019 stóðu þeir undir 29 prósent gistinátta á íslenskum hótelum. Til samanburðar var hlutfall bandarískra hótelgesta rétt um fimm af hundraði í Noregi. Vægi Bandaríkjamanna var líka um fimm prósent í Vínarborg og Berlín svo fleiri dæmi séu tekin.

Íslensk ferðaþjónstufyrirtæki og þá sérstaklega Icelandair eiga mikið undir því að bandaríski markaðurinn opnist fljótlega. Ef það gerist ekki nægjanlega snemma fyrir komandi sumarvertíð þá er ljóst að Icelandair þarf ekki bara að fækka ferðunum til Bandaríkjanna heldur líka til Evrópu. Stór hluti af farþegum félagsins eru nefnilega tengifarþegar á leið yfir Norður-Atlantshafið.

Ef félagið fækkar svo ferðunum til Þýskalands, Frakklands, Bretlands og Norðurlandanna þá er dregur verulega úr heildarframboði á Íslandsflugi næsta sumar frá Evrópu. Hlutdeild Icelandair er nefnilega mjög há. Ástæðan er meðal annars sú að mörg af umsvifamestu flugfélögum Evrópu sinna ekki Íslandsflugi.

Ryanair er það félag sem flytur flesta farþega innan álfunnar en þotur þess hafa hingað til ekki sett stefnuna á Keflavíkurflugvöll. Sömu sögu eru að segja um systurfélögin Air France og KLM, tvö af stærstu flugfélögum Evrópu.

Hið þýska Lufthansa flýgur vissulega hingað allt árið um kring en dótturfélag þess, Eurowings, er að leggja niður sínar ferðir til Íslands. Og önnur félög innan Lufthansa samsteypunnar hafa haldið sig fjarri. Farþegar stórra evrópskra flugfélaga eins og Aer Lingus, TAP, Aeroflot og Turkish Airlines hafa heldur ekki kost á Íslandsflugi.

Öll þessi félög sem eru nefnd hér að ofan halda úti ferðum til hinna Norðurlandanna. Flugið þangað tekur líka oftast skemmri tíma en til Íslands. Fjarlægðin flækir því útgerðina eins og einn af framkvæmdastjórum Lufthansa útskýrði í viðtali við Túrista.

Í dag er ekki vitað hvenær flugsamgöngur verða með eðlilegri hætti innan Evrópu og hvað þá milli heimsálfa. En ef ferðamannastraumurinn hingað næsta sumar verður aðallega frá Evrópu þá er fjarvera stórra flugfélaga veikleiki fyrir íslenska ferðaþjónustu. Og líka sú staðreynd að Evrópuflug Icelandair byggir á því Ameríka sé opin.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …