Samfélagsmiðlar

Svona dregst framboðið hjá Icelandair saman í ársbyrjun

Þotur Icelandair flugu að jafnaði um 25 ferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli í janúar og febrúar í fyrra og hittifyrra. Núna stefnir í tvær ferðir á dag.

Strangar ferðatakmarkanir gilda áfram víða um heim og nú þurfa farþegar sem koma til Bretlands og Danmerkur að sýna fram á neikvæða niðurstöðu í nýju Covid-19 prófi. Og ennþá fá erlendir ferðamenn ekki að komast inn fyrir landamæri Bandaríkjanna og Kanada.

Af þessum sökum halda stjórnendur flugfélaga áfram að skera niður flugáætlanir sínar og þannig gerir uppfærð áætlun Icelandair aðeins ráð fyrir flugi til sex evrópskra borga í febrúar. Áður var áformað að taka upp þráðinn í flugi til Norður-Ameríku um miðjan næsta mánuð.

Í febrúar munu þotur félagsins fljúga daglega til Kaupmannahafnar og tvisvar í viku til London, Amsterdam og Boston. Auk þess verða vikulegar ferðir til Munchen og tvær til Frankfurt.

Að jafnaði mun Icelandair þá standa fyrir um tveimur brottförum á dag frá Keflavíkurflugvelli þessa tvo fyrstu mánuði ársins. Á sama tíma í fyrra og hittifyrra voru brottfarirnar um tuttugu og fimm á dag.

Og miðað við þessa nýju flugáætlun Icelandair þá verður framboðið í janúar og febrúar, í sætiskílómetrum talið, á bilinu 55 til 58 milljónir í hvorum mánuði fyrir sig samkvæmt útreikningum Túrista.

Til samanburðar gerði spá félagsins, sem birt var í tengslum við hlutafjárútboðið haust, ráð fyrir að framboðið yrði að jafnaði 77 milljónir sætiskílómetra á mánuði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Samdrátturinn verður þá 94 prósent í stað 92 prósenta.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …