Samfélagsmiðlar

Fjárfestar spenntir fyrir nýju flugfélagi

Þó hið norska Flyr hafi ekki selt einn einasta flugmiða þá fóru hlutabréfin í félaginu á markað í gær. Fyrsta viðskiptadaginn hækkuðu bréfin um nærri fimmtung. Íslandsflug er ekki hluti af viðskiptaáætlun Flyr.

Það eru ekki aðeins forráðamenn Play sem eru í startholunum með að hefja flugrekstur um leið og rofar til í ferðageiranum. Í Noregi er unnið að því að koma í loftið félagi sem kallast Flyr en fyrir því verkefni fyrir Eric Braathens sem er margreyndur í norrænum fluggeira. Með honum er fólk með langa reynslu, meðal annars frá SAS og Norwegian.

Flyr tryggði sér nýverið þær 600 milljónir norskra króna (um 9 milljarða ísl. kr.) sem þarf til rekstursins fyrstu þrjú árin að mati forráðamanna verkefnisins. Og þó félagið sé ekki ennþá komið með flugrekstrarleyfi eða farið að selja flugmiða þá hófust viðskipti með hlutabréf Flyr á Euronext Growth markaðnum í gær. Strax fyrsta daginn rauk gengi bréfanna upp um nærri fimmtung.

Af stað um mitt ár

Fjárfestar í Noregi virðast því bjartsýnir á framhaldið hjá Flyr en áformað er að jómfrúarferðin verði á dagskrá um mitt þetta ár. Fyrst um sinn eiga umsvifin að takmarkast að mestu við innanlandsflug í Noregi auk ferða frá Ósló til evrópskra áfangastaða líkt og fram kom á rafrænum blaðamannafundi sem Túristi sótti í ársbyrjun.

Forsvarsmenn Flyr hafa teiknað upp leiðakerfi félagsins til næstu ára og þar er ekki gert ráð fyrir neinu flugi til Íslands.

Nota eldri gerðir af flugvélum

Flugfloti norska félagsins mun aðeins samanstanda af eldri gerðum af Boeing 737 þotum. Til að byrja með átta eintök en allt að þrjátíu í heildina innan þriggja ára.

Ein helsta ástæðan fyrir því að Flyr veðjar á eldri þotur er sú að leiguverðið á þeim hefur helmingast í yfirstandandi heimsfaraldri að sögn aðstandanda félagsins. Ein skýring á lækkuninni er sú að flugfélög víða um heim hafa að undanförnu losað sig við eldri og eyðslufrekari flugvélar en halda eftir þeim sparneyttu.

Til samanburðar má rifja upp að Play hyggst nota nýlegar Airbus A321neo þotur í sinn rekstur.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …