Samfélagsmiðlar

Play að fara sömu leið og norsku félögin

Í Noregi eru í tvö ný flugfélög í startholunum. Hlutabréf annars þeirra fóru á markað í byrjun mars og hækkuðu hratt í upphafi. Gengið hefur hins vegar lækkað umtalsvert síðustu daga.

Það þarf fimm milljarða króna til að tryggja rekstur hins verðandi flugfélags Play út næsta ár samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins í dag. Heimildir blaðsins herma að leitað hafi verið til stærstu lífeyrissjóða landsins um að fjárfesta í félaginu og stefnt sé að því að setja bréf í Play á First North hlutabréfamarkaðinn innan skamms.

Það er sama leið og farin var í tengslum við stofnun Flyr flugfélagsins í Noregi fyrr í þessum mánuði. Flyr er ekki ennþá komið með flugrekstrarleyfi en hefur tryggt sér um níu milljarða króna í hlutafé. Þann 1. mars sl. fóru hlutabréfin á markað í Noregi og hækkaði gengi þeirra um nærri fimmtung fyrsta daginn.

Þau hafa hins vegar lækkað um 28 prósent frá þeim hápunkti og í dag er gengið um tíund undir útboðsgenginu. Á þessu tímabili hefur einn þeirra sem lögðu Flyr til fé í upphafi, norski auðjöfurinn Arne Fredly, selt um þrjá fjórðu af hlutabréfunum sínum í Flyr samkvæmt fréttum Dagens Næringsliv.

Stofnandi Norwegian Bjørn Kjos, sem jafnframt var forstjóri félagsins um langt skeið, kemur svo að stofnun annars flugfélags í Noregi sem fengið hefur heitið Norse Atlantic Airways. Áform aðstandenda þess félags eru að skrá félagið á markað í Noregi nú í vor og standa vonir til að jómfrúarferðin verði farin í árslok.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …