Samfélagsmiðlar

MAX vélarnar munu nýtast betur í fraktflutninga en útlit var fyrir

„MAX þoturnar hafa þó marga kosti og þegar við erum búin að ná að læra betur inn á þær þá er ég viss um að þær nýtast betur en við héldum í fyrstu. Þannig var það með Boeing 757 vélarnar," segir framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.

„MAX þoturnar eru allt öðruvísi en Boeing 757 sem hafa þjónað okkur svo vel í gegnum tíðina en eru á útleið á næstu árum,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.

„Við erum að læra á nýju vélarnar og hvernig við getum náð hámarks nýtingu. Flugvélar eru öðruvísi en bílar að því leyti að þú getur hlaðið bílinn eins lengi og það er pláss. Í flugvélum þarftu aftur á móti að taka tillit til fleiri þátta við hleðslu eins og til dæmis jafnvægis þotunnar,” útskýrir Gunnar Már.

Hafa náð miklu út úr Boeing 757

Icelandair tók fyrstu MAX þoturnar í notkun fyrir sumarvertíðina 2018 en mars árið eftir voru þær kyrrsettar í kjölfar tveggja flugslysa. Það var svo ekki fyrr en tveimur árum síðar, í byrjun síðasta mánaðar, sem Icelandair hóf að fljúga MAX þotunum á ný. Starfsmenn Icelandair Cargo hafa því ekki fengið mikla reynslu af þessum nýju flugvélum.

„MAX þoturnar hafa þó marga kosti og þegar við erum búin að ná að læra betur inn á þær þá er ég viss um að þær nýtast betur en við héldum í fyrstu. Þannig var það með Boeing 757 vélarnar. Sú tegund á að geta flutt fjögur tonn af frakt en við höfum náð að fylla þær mun betur og flutt allt að 9,5 tonn í ferð. Það er held ég heimsmet enda er ótrúlegt hvað búið er að ná miklu út úr þeirri flugvél. Við erum líka með frábæra hlaðmenn sem spila stórt hlutverk í að ná hámarksnýtingu,” segir Gunnar Már.

Hann bendir á að Icelandair sé með tvær gerðir af MAX þotum, MAX 8 og MAX 9. Og í þeim síðarnefndu sé plássið í lestinni jafnmikið og í Boeing 757 þotunum sem fyrir eru í flota Icelandair.

Frábærar í farþegaflugið en ekki klár kostur fyrir fraktina

Haustið 2022 mun Icelandair Cargo taka við tveimur Boeing 767 breiðþotum sem mun gera fyrirtækinu kleift að flytja meiri frakt milli Evrópu og Bandaríkjanna og þá í gegnum Ísland. Áfram er þó ætlunin að nýta leiðakerfi Icelandair til að flytja frakt til og frá Íslandi.

Gunnar Már telur því víst að nýju þoturnar muni nýtast í fraktflutningum til að fylla upp í og vinna með stærri vélunum.

„MAX vélarnar hafa alla burði til að nýtast frábærlega í farþegakerfinu en ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hefði ég ekki valið þessar vélar ef aðeins ætti að hugsa um hagsmuni fraktarinnar,” segir Gunnar Már að lokum.

Þetta er annar hluti viðtals Túrista við framkvæmdastjóra Icelandair Cargo. Fyrsta hlutann má lesa hér.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …