Bandaríska flugfélagið Delta hefur flug til Keflavíkurflugvallar á nýjan leik á laugardaginn. Fyrst frá New York en síðar í maí bætast við ferðir frá Boston og Minneapolis.
Í þotum félagsins sem hingað fljúga, frá JFK flugvelli í New York, eru 168 sæti og þar af eru sextán á fyrsta farrými, Delta One. Þessi sæti eru kölluð ”Flat-bed” en þau er hægt að leggja alveg niður og þá verður til 196 sentimetra langt rúm.
Og samkvæmt talningu Túrista eru ellefu beddar af sextán fráteknir í fyrstu ferð Delta þann 1. maí. Næstu daga á eftir eru lausu sætin fleiri en samtals er þó búið að selja 45 af þeim 80 „Flat-bed“ sætum sem í boði eru fyrstu vikuna.
En eins og fram kom í nýlegu viðtali Túrista við Erling Aspelund, framkvæmdastjóra Iceland Encounter, þá kýs hópur betur borgandi ferðamanna að fljúga hingað til lands með bandarísku flugfélögunum í stað Icelandair. Saga Class farrýmið hefur nefnilega ekki þótt vera nógu gott fyrir þessa farþega.