Samfélagsmiðlar

Útflytjendur farnir að bóka fraktflug hjá Delta

Delta notast við Boeing 757 þotur í flugi sínu til Íslands. Það er sama flugvélatýpa og er uppistaðan í flota Icelandair.

Nú um helgina tekur bandaríska flugfélagið Delta upp þráðinn í Íslandsflugi sínu. Og það verða ekki aðeins bandarískir ferðamenn um borð heldur líka varningur frá íslenskum útflytjendum. Ennþá eru bandarísk landamæri hins vegar lokuð fyrir íslensku ferðafólki.

Það er flugfélagið Bláfugl sem hefur umsjón með sölu á fraktflugi Delta frá Keflavíkurflugvelli og segir Sveinn Zoega, sölustjóri Bláfugls, að útflytjendur hafi tekið vel í aukið fraktflug til Norður-Ameríku.

„Við höfum skynjað mikinn áhuga og eftirspurn eftir flugum vestur um haf. Bláfugl hóf að fljúga vikulega milli Íslands og Kanada í nóvember til að bregðast við þessari auknu eftirspurn.  Þau flug hafa verið vel bókuð hjá okkur og nú þegar Delta eru að hefja flug til Bandaríkjanna þá hafa útflytjendur tekið vel við sér.  Þegar er búið að bóka í fyrstu flugin og líkur á að þau verði nokkuð þétt bókuð,“ segir Sveinn.

Líkt og fram kom í viðtali Túrista við framkvæmdastjóra Icelandair Cargo þá hefur verð á fraktflutningum í flugi hækkað verulega í yfirstandandi heimsfaraldri.

Spurður um verðlagið hjá Delta þá bendir Sveinn á að það hafi hækkað talsvert á leiðinni frá Evrópu til N-Ameríku en minna í hina áttina.

„Innan Evrópu hefur verðið á sama tíma verið meira og minna óbreytt frá því fyrir Covid. Delta hefur ekki flogið milli Bandaríkjanna og Íslands í ca. 18 mánuði og mun verðlag taka mið af markaðsverðinu eins og það er í dag. Hins vegar búumst við ekki við að verð breytist að neinu ráði í nánustu framtíð m.v. núverandi markaðsverð,“ svarar Sveinn.

Sem fyrr segir þá byrjar Delta á því að fljúga hingað frá New York en síðar í maí hefjast daglegar áætlunarferðir frá Minneapolis og Boston. Sveinn segir að þar með aukist möguleikar útflytjenda en hann bendir á að tengiflug sé í boði fyrir fraktina um öll Bandaríkin.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …