Þó jómfrúarferð Play verði farin þann 24. júní þá gerir áætlun félagsins aðeins ráð fyrir fáum ferðum fyrstu vikurnar. Til að byrja með verður Play nefnilega aðeins með eina flugvél til umráða en í júlí bætast tvær þotur við.
Þá verða ferðirnar tíðari og flug hefst til fleiri áfangastaða. Þegar sumardagskrá Play verður komin á fullt verða brottfarirnar frá Keflavíkurflugvelli 22 í viku hverri. Hér fyrir neðan má sjá hvernig þær skiptast á milli vikudaga.
Í áætlun félagsins er gert ráð fyrir fjórum ferðum í viku til Kaupmannahafnar, Berlínar, Parísar og London. Til Alicante, Barcelona og Tenerife verður flogið tvisvar í hverri viku.
Af þessum sjö áfangastöðum þá gerir Play ráð fyrir að fljúga allt árið til fimm þeirra en gert verður hlé á ferðunum til Alicante og Barcelona í haust.