Samfélagsmiðlar

Ferðaskrifstofureksturinn í sérfélag og leigja frá sér helming húsnæðisins

airportexpress

Rúta á vegum Gray Line á leið frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Síðastliðið sumar samþykkti Alþingi lög sem gefa ferðaþjónustufyrirtækjum heimild til að fara í greiðsluskjól vegna þeirra erfiðleika sem kórónuveirukreppan hefur valdið. Allrahanda GL ehf., rekstraraðili Gray Line á Íslandi, er eitt þeirra fyrirtækja sem nýtti þetta nýja úrræði um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar og að sögn Þóris Garðarssonar, stjórnarformanns, þá er sú vinna á áætlun.

Verkefnið felur meðal annars í sér að skipta upp rekstri fyrirtækisins og verður ferðaskrifstofustarfsemin færð yfir í annað félag, GL Iceland ehf. Hópferðabílareksturinn og rekstur fasteignarinnar að Klettagörðum 4 verður áfram í Allrahanda GL ehf. útskýrir Þórir.

Hann segir þetta sama fyrirkomulag og margir af samkeppnisaðilum fyrirtækisins starfa samkvæmt.

„Það var í raun orðið löngu tímabært að skipta starfseminni upp því rekstur ferðaskrifstofu og hópbifreiðafyrirtækis er mjög ólíkur,“ bætir Þórir við.

Til viðbótar við þessar breytingar á hefur Allrahand GL gengið frá samkomulagi um að leigja helming af húsnæði fyrirtækisins undir þjónustuverkstæði fyrir Mercedes Benz. En bílaumboðið Askja og Sleggjan hafi gengið til samstarfs um þjónustu við vöru- og hópferðabíla frá Mercedes-Benz, Setra og Unimog.

„Þessi samningur felur það jafnframt í sér að leigutaki tekur að sér viðhald og þjónustu á bílaflota Gray Line. Það tryggir okkur áfram áfram fyrsta flokks viðhald, gæði og öryggi fyrir viðskiptavinina auk þess sem við náum fram þeirri fjárhagslegri hagræðingu sem er eitt af meginmarkmiðum þess verkefnis sem við erum í,“ segir Þórir að lokum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …