Samfélagsmiðlar

Íslendingar verða áfram að leita í spænska banka

Skandinavar sem þurfa lán til fasteignakaupa á Spáni geta í mörgum tilfellum fengið lánað hjá sínum eigin banka. Og jafnvel á lægri vöxtum en í boði er hjá spænskum fjármálastofnunum.

Íslendingar hafa lengi horft til Alicante og nágrennis þegar kemur að fasteignakaupum. Skýringin liggur vafalítið í meira framboði á beinu flugi þangað en til annarra sólarstaða á meginlandi Spánar.

Það er viðbúið að áhugi Norðmanna á fasteignum á Spáni muni aukast hratt nú þegar slakað verður á ferðatakmörkunum. Þetta er mat sérfræðinga norska bankans DNB en sá, líkt og margir aðrir stórir skandinavískir bankar, veitir lán til húsnæðiskaupa á Spáni og víðar í suðurhluta Evrópu.

Áfram verða Íslendingar hins vegar að treysta á spænskar fjármálastofnanir þegar kemur að fasteignaviðskiptum á Spáni. Því samkvæmt svörum frá Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankanum þá er ekki á stefnuskrá bankanna þriggja að veita fasteignalán í útlöndum. Áfram verður einblínt á fjármögnun á íbúðahúsnæði hér á landi.

Á sama tíma reka bankar eins og Handelsbanken í Svíþjóð og Nykredit í Danmörku útibú á Spáni, t.d. á Marbella og á Mallorca.

Og það eru ekki bara skandinavískir bankar sem hafa haslað sér völl í suðurhluta Evrópu. Þar eru líka að finna skrifstofur á vegum umsvifamestu fasteignasala Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur.

Ein af þeim er hin sænska Bjurfors en á heimasíðu hennar segir að kosturinn við að fjármagna fasteignakaup á Spáni í gegnum sænska banka sé sá að vextirnir geti verið hærri hjá þeim spænsku. Á sama tíma geri bankar á Spáni kröfu um að búið sé að greiða upp lánið við 70 til 75 ára aldur.

Íslendingar í fasteignahugleiðingum á Spáni geta leitað til íslenskra fyrirtækja sem sérhæfa sig í fasteignaviðskiptum þar í landi.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …