Samfélagsmiðlar

Loftbrú til Portúgals en engin viðbót í Íslandsflugi

Það er ekki að sjá á flugáætlunum að eftirspurn eftir Íslandsferðum frá Bretlandi hafi aukist nú í sumarbyrjun.

Bresk stjórnvöld tilkynntu í lok síðustu viku til hvaða tólf landa Englendingar geta ferðast til án þess að þurfa í sóttkví við heimkomuna. Heimastjórn Skotlands staðfesti svo þennan græna lista í gær en hann gildir frá og með næstkomandi mánudegi.

Vinsælir sumaráfangastaðir eins og Spánn, Ítalía og Grikkland eru ekki á listanum og því þurfa Bretar í tíu daga sóttkví þegar þeir snúa heima eftir að hafa dvalið í þessum löndum. Portúgal er hins vegar á græna listanum og síðustu daga hefur framboð á flugi til Lissabon og Faro, í suðurhluta Portúgals, frá Bretlandi margfaldast.

Ísland er líka á græna listanum en það eru engin merki um að framboð á flugi hingað frá Bretlandi hafi aukist eftir að bresk stjórnvöld kynntu ákvörðun sína fyrir helgi.

Ferðunum hefur reyndar fækkað síðustu daga því Icelandair hefur fellt niður allt flug til Gatwick flugvallar í útjaðri London í júní. Félagið gerir svo aðeins ráð fyrir fjórum ferðum til Manchester í næsta mánuði og fimm ferðum til Glasgow en áfram eru daglegar ferðir til Heathrow í London á dagskrá.

Stjórnendur British Airways hafa síðustu daga ekki haft undan að bæta við ferðum til Portúgal frá nokkrum enskum flugvöllum. Breska félagið heldur á sama tíma í fyrri plön um að hefja ekki flug til Íslands á ný fyrr en í lok júní.

Flugáætlun easyJet á Keflavíkurflugvelli í júní er álíka takmörkuð og hún var. Félagið stefnir nefnilega á helmingi færri ferðir til Íslands nú í sumar en sumarið 2019.

Wizz Air er svo fjórða félagið sem heldur úti flugi milli Íslands og Bretlands yfir sumarmánuðina. Og þar er staðan sú sama í dag og hún var í síðustu viku því ungverska lágfargjaldafélagið ætlar aðeins að fljúga hingað tvær til þrjár ferðir í viku í næsta mánuði.

Væntingar um að Bretar fjölmenni til Íslands nú í sumar eru þó vafalítið ekki mjög miklar í ferðageiranum. Bretar hafa nefnilega síðustu ár aðallega sótt í vetrarferðir til Íslands og til marks um það þá komu hingað 47 þúsund breskir ferðamenn í febrúar 2018. Yfir sumarmánuðina þrjá, þetta sama ár, voru bresku túristarnir samanlagt 42 þúsund.

Hylli Íslands sem vetraráfangastaðar var þó ekki svona fyrr en easyJet hóf að fljúga til Íslands allt árið um kring en það gerðist árið 2012. Árið 2011 komu þannig sjö þúsund ferðamenn hingað í febrúar en þeir voru nærri tuttugu þúsund yfir sumarmánuðina þrjá.

Þess má geta að Túristi hefur árangurslaust reynt að fá nánari skýringar frá forsvarsfólki erlendu flugfélaganna á takmörkuðu framboði á flugi hingað næstu vikur. Engin svör hafa fengist.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …