Samfélagsmiðlar

Play fylgir sömu línu og Icelandair í verðlagningu

Það eru ekki allir farþegar á Keflavíkurflugvelli búnir að ákveða hvenær þeir koma heim aftur. Íslensku flugfélögin rukka þann hóp um töluvert viðbótarálag eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Hjá lágfargjaldaflugfélögum skiptir það almennt ekki máli hvort þú bókar farmiða aðra leiðina eða báðar. Verðið er það sama hvort sem heimferðin er keypt með eða ekki. Mörg hefðbundin flugfélög hafa fylgt þessu fordæmi og fellt niður viðbótarálag á staka farmiða. Það hefur Icelandair ekki gert og Play hefur valið að fara sömu leið og íslenski keppinauturinn.

Þar með verður dýrara að kaupa stakan farmiða af íslensku flugfélögunum en þeim erlendu eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Þar er horft til þeirra dagsetninga sem Play flýgur í fyrsta sinn til London, Kaupmannahafnar og Barcelona.

Í öllum tilvikum rukka lággjaldaflugfélögin easyJet, Wizz Air og Vueling það sama fyrir sætið frá Keflavíkurflugvelli hvort sem heimferðin er bókuð með eða ekki.

British Airways og SAS, sem teljast til hefðbundinna flugfélaga, leggja aðeins ofan á staka farmiða en þó mun minna hlutfallslega en Icelandair og Play.

Í sumum tilfellum er munurinn hjá Icelandair reyndar það mikill að farþegar geta sparað sér þúsundir króna með því að kaupa farmiða sem gildir báðar leiðir jafnvel þó ætlunin sé aðeins að nota fyrri legginn.

Spurður um ástæður þess að Play fari ekki sömu leið og stóru lágfargjaldaflugfélögin, í verðlagningu á stökum farmiðum, þá segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, þetta sé sú nálgun sem valin hafi verið eftir greiningu á tekjustýringu keppinautanna. Hann segir þetta þó geta breyst og þróast í takt við það hvernig samkeppnin breytist.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …