Samfélagsmiðlar

Erlendu flugfélögin fækka ferðunum í júní

Umferðin um Keflavíkurflugvöll eykst umtalsvert nú í júní en þó minna en útlit var fyrir.

Það er ekki aðeins Icelandair sem hefur tekið úr sölu stóran hluta af brottförum sínum frá Keflavíkurflugvelli nú í júní með stuttum fyrirvara.

Dagskrár erlendu flugfélaganna hafa nefnilega líka dregist verulega saman samkvæmt talningum Túrista. Þann 6. maí voru félögin með nærri fjögur hundruð ferðir á boðstólum til Íslands í júní samkvæmt talningu Túrista. Í dag. 1. júní, er fjöldinn kominn niður í 289 ferðir. Samdrátturinn nemur um fjórðungi.

Þessar sviptingar eru dæmi um hversu stjórnendur flugfélaga eiga erfitt með að lesa í markaðinn. Ein af skýringunum á því er sú að nú bókar fólk með mun styttri fyrirvara en áður líkt og fram kom í tilkynningu frá SAS í síðustu viku. Vegna ástandsins ætlar þetta stærsta flugfélag Norðurlanda að byrja að draga á lánalínur frá sænska og danska ríkinu.

Eins og staðan er núna þá verður bandaríska flugfélagið Delta það umsvifamesta á Keflavíkurflugvelli í júní ef Icelandair er frátalið. Þar á eftir koma Wizz Air, Lufthansa og EasyJet.

Aftur á móti hafa Norwegian og S7 tekið úr sölu allar sínar ferðir til Íslands í júní og Eurowings, Transavia og Czech Airlines hafa fækkað sínum ferðum umtalsvert.

Í heildina tekið munu erlend flugfélög þó standa fyrir um tíu ferðum á dag að jafnaði til Keflavíkurflugvallar sem er mun meira framboð en verið hefur síðustu misseri.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …