Samfélagsmiðlar

Gera upp við viðskiptavini og leita samninga við kröfuhafa

Stefnt er að því að Straumhvarf ehf., rekstrarfélag Arctic Adventures, fari úr greiðsluskjóli á þriðjudaginn í næstu viku. Þá verður ár liðið frá því að félagið fékk heimild til að nýta sér úrræði um tímabundið greiðsluskjól.

Skuldir félagsins nema í dag rétt um 1,1 milljarði króna og þar af eru skuldir við viðskiptavini 573 milljónir króna. Ætlunin er að endurgreiða að fullu allar alferðir og er sú endurgreiðsla fjármögnuð með láni frá Ferðaábyrgðarsjóði upp á 273 milljónir króna.

Aðrar ferðir verða endurgreiddar skv. skilmálum en öllum viðskiptavinum verða boðnar hagstæðar inneignir í stað endurgreiðslu. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var lánadrottnum Straumhvarfa þann 5. júní.

Þar er almennum kröfuhöfum gefnir tveir kostir. Annars vegar að fá skuld sína að fullu greidda en í fjórum jafnstórum afborgunum. Sú síðasta dagsett þann 1. apríl á næsta ári. Kröfuhafar fá einnig val um að fá áttatíu prósent af kröfu sinni og fer uppgjörið þá fram nú um mánaðamótin.

Hluti af fjárhagslegri endurskipulagningu Straumhvarfs byggir á 200 milljón króna láni frá Landsbanka Íslands.

Arctic Adventures er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og sérhæfir sig í afþreyingu fyrir ferðafólk. Undir lok árs 2019 var gengið frá samruna fyrirtækisins við Into the Glacier og það ár nam hagnaður Straumhvarfs 482 milljónum króna.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …