Samfélagsmiðlar

Íslendingar farnir að elta veðrið til útlanda

strond nikos zacharoulis

Það verða kannski fleiri Íslendingar sem verja fríinu á sólarströnd nú í sumar en útlit var fyrir.

Nú í sumarbyrjun sögðust níu af hverjum tíu Íslendingum ætla að ferðast innanlands í sumar og stór hluti ætlaði að láta veðrið ráða ferðinni.

Sumarblíðan hefur þó lítið látið á sér kræla og stærstu ferðaskrifstofur landsins finna fyrir auknum áhuga landsmanna á utanlandsferðum nú í sumar.

„Við höfum fundið fyrir meiri og meiri þunga í bókunum eftir því sem bólusetningum miðar áfram og eigum til að mynda ekki til eitt einasta sæti út júní. Fyrripartur júlí er orðin þéttbókaður og mjög fá sæti eftir í sólina.  Íslendingar eru bæði orðnir mjög ferðaþyrstir og svo hefur sumarið á Íslandi verið hrein hörmung,“ segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita, spurður um eftirspurn eftir utanlandsferðum nú í sumar.

Hann segir fólk aðallega vera að tryggja sér sæti í sól þegar sér fyrir endann á bólusetningum í fjölskyldunni. Vinsælustu áfangastaðirnir séu því Alicante og Tenerife og bendir Þráinn á að sá fyrrnefndi sé nú grænt svæði alveg eins og Ísland.

Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands, segir góðan stíganda vera þar á bæ og fólk sé að bóka með stuttum fyrirvara. Hún segist gera ráð fyrir ennþá betri gangi eftir þessa viku enda margir sem verði bólusettir næstu daga.

Eins og gefur að skilja þá er framboð á sólarlandaferðum núna mun minna en það var fyrir heimsfaraldur. Úrvalið hjá ferðaskrifstofunum eykst þó næstu vikur. Næði verða brottfarirnir til Spánar tíðari og eins bætast við ferðir til Krítar í byrjun júlí hjá Heimsferðum, Úrval-Útsýn og Vita.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …