Það er von á nokkrum tugum þúsunda ferðamanna til Íslands í júní og gera má ráð fyrir að stór hluti þeirra ferðist um landið á bílaleigubíl.
Og þeir útlendingar sem ætla að bóka bíl núna, fyrir Íslandsreisu í seinni hluta júnímánaðar, borga að jafnaði rúmar fjórtán þúsund krónur á dag fyrir leiguna. Verðið var tæplega þúsund krónum lægra fyrir þá sem bókuðu bílinn í mars síðastliðnum. Hlutfallslega hefur verðið hækkað um sjö prósent og hana má alla rekja til hækkunar á leigu jepplinga. Verðið á minnstu bílunum hefur staðið í stað.
Þetta sýna verðkannanir sem Túristi hefur gert með jöfnu millibili síðan í desember í fyrra. Þar er horft til verðlags hjá fimm umsvifamiklum bílaleigum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og skoðað er leiguverð á bæði smábílum og jepplingum.
Verðlagið í júlí er aftur á móti töluvert óhagstæðara í dag en það var í mars því meðalverðið hefur hækkað um fimmtung. Hækkunin í ágúst nemur sex prósentum.