Sá sem pantaði strax í desember í fyrra bílaleigubíl hér á landi, fyrir fyrstu vikuna í ágúst í ár, þurfi að jafnaði að borga rétt um 12 þúsund krónur á dag fyrir smábíl. Fyrir jeppling var verðið nærri tvöfalt hærra.
Í mars hafði leigan hækkað lítillega og í byrjun júní var hún orðin um þriðjungi hærri samkvæmt reglulegum verðkönnunum Túrista.
Í dag er staðan hins vegar sú að tvær af stærstu bílaleigum landsins, Europcar og Enterprise, hafa enga bíla á boðstólum fyrir fyrstu vikuna í ágúst. Hjá öðrum hefur verðið hækkað eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan. Verðskrá Hertz og Bluecar er til að mynda um þrefalt hærri þegar kemur að smábílum en hækkunin er hlutfallslega minnst hjá Avis.
Í könnunum Túrista var eingöngu horft til leiguverðs hjá þessum fimm bílaleigum en þrjár þeirra eru einu bílaleigurnar sem eru með aðstöðu inni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.