Samfélagsmiðlar

Hlutur bandaríska lánasjóðsins er skráður á Írlandi

Stærsti hluthafi Icelandair ætlar að hasla sér völl í fjármögnun og útleigu á farþegaþotum.

Icelandair Group hyggst bæta tveimur Boeing MAX þotum við flota sinn fljótlega.

Hluthafar Icelandair Group samþykktu í lok síðustu viku að auka hlutafé í samsteypunni og hleypa þannig Bain Capital inn í eigendahópinn. Bandaríska fjárfestingafélagið eignast 16,6 prósent hlut og er því langstærsti hluthafinn.

Starfsemi Bain Capital skiptist niður á nokkur ólík svið og þar á meðal er lánasjóðurinn Bain Capital Credit og fjárfestingasjóðurinn Bain Capital Private Equity. Í eignasafni þess síðarnefnda er til að mynda ástralska flugfélagið Virgin Australia.

Hluturinn í Icelandair mun aftur á móti heyra undir Bain Capital Credit. Þetta staðfestir talsmaður sjóðsins í skriflegu svari til Túrista. Eignarhaldið er í gegnum írskt dótturfélag sem sett var á laggirnar fyrir aðeins tveimur mánuðum síðan.

Spurður út í það atriði þá segir talsmaðurinn að teymið sem haldi utan um fjárfestinguna í Icelandair sé í Norður-Ameríku en ekki sé óalgengt að eignarhald fjárfestinga Bain Capital sé annars staðar.

Eiga nú þegar tvær af flugvélum Icelandair

Meðal verkefna í fluggeiranum sem Bain Capital lánasjóðurinn hefur nýlega komið að er Titan Aviation Holdings. Það fyrirtæki sérhæfir sig í fjármögnun og útleigu á fraktflugvélum. Og það var einmitt í gegnum Titan Aviation sem kynni Bain Capital Credit að Icelandair hófust. Því í mars síðastliðnum var gengið frá kaupum Titan Aviation á tveimur breiðþotum Icelandair.

Ætlunin er að breyta flugvélunum í fraktvélar og mun Icelandair Cargo leigja þær tilbaka.

Sjá tækifæri í útleigu á farþegaþotum

Bain Capital Credit sér líka tækifæri í að leigja út farþegaþotur og í janúar í fyrra, stuttu fyrir Covid-19, kom lánasjóðurinn að stofnun flugvélaleigu með eignastýringafyrirtækinu Griffin. Þar er hugsunin sú að Bain Capital Credit sjái um fjármögnun flugvélaviðskipta fyrir flugfélög.

Hvort næstu flugvélaviðskipti Icelandair eigi eftir að fara í gegnum þá flugvélaleigu á tíminn svo eftir að leiða í ljós. Aðrir hluthafar í Icelandair samsteypunni vilja þó væntanlega ganga úr skugga um að þar séu engir hagsmunaárekstrar.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …